Golfpenni Sigurpáls | miðvikudagur 24. júní 2009 | 23:40

Glompuhögg


Það eru eflaust margir sem eiga í vandræðum með glompuhögg. Glompuhögg ættu ekki að þurfa að vera mjög erfið, þ.e.a.s. að ná honum allavega uppúr sandinum. Algengustu mistök kylfinga við glompuhögg eru að menn eru alls ekki að fylgja högginu nógu vel eftir. Maður sér ofboðslega oft að kylfan stoppar í sandinum og þau högg fara mjög sjaldan uppúr. Hér á eftir ætla ég að gefa ykkur nokkur ráð um hvernig er best að slá uppúr sandgryfjum.

Veikt grip
Ef þið eigið erfitt með að slá uppúr sandi skuluð þið endilega prófa þetta. Stillið ykkur upp með örlítið opna stöðu og prófið að veikja gripið á vinstri hendinni. Þetta ætti að gefa ykkur betri stefnu og einnig örlítið hærra boltaflug uppúr sandinum. Það kom mér verulega á óvart hversu stefnan varð betri þegar ég prófaði þetta.

Sláðu sandinn uppúr glompunni
Sennilega er algengasta orsökin fyrir slæmum glompuhöggum sú að menn fylgja ekki nógu vel eftir högginu. Um leið og menn hika í niðursveiflunni er sandurinn hrikalega fljótur að drepa höggið og kúlan fer ekki uppúr. Prófið að hugsa eingöngu um að koma sandinum uppúr gryfjunni. Sandurinn fer ekki almennilega uppúr ef ekki er vel fylgt eftir. Ef þessi hugsun kemst í framkvæmd er miklu líklegra að kúlan fari vel uppúr og þá er markmiðinu náð hjá ansi mörgum kylfingum.

Skiptu um járn fyrir lengri högg
Margir eiga í erfiðleikum með glompuhögg á bilinu 20-40 metrar. Ég kynntist aðferð fyrir nokkrum árum sem svínvirkar fyrir mig og ætti að geta virkað fyrir ykkur líka. Ef höggið fer yfir 20 metra skipti ég úr SW í PW og slæ höggið með sama krafti, en fæ meiri lengd vegna minni fláa á kylfunni. Ég slæ svo stundum 30-40 metra högg með 9 járni og næ miklu meiri nákvæmni með þessari að ferð heldur en að taka minni sand eða slá mikið fastar í kúluna. Þessa aðferð er auðvitað ekki hægt að nota ef bakkinn er mjög hár eða þá að kúlan er alveg uppvið bakkann. Í flestum tilfellum er hægt að nota þetta og ég skora á ykkur að prófa þetta við tækifæri ef glompuhöggin eru að stríða ykkur mikið.

Kær kveðja,
Siggi Palli