GS_opindagur.leiran.2012mai

Fréttir | þriðjudagur 23. júní 2009 | 14:09

Fór tvisvar holu í höggi!


„Þetta eru hæfileikar, ekki heppni enda æfi ég golf fjóra tíma fjórum sinnum í hverri viku,“ sagði Símon Leví Héðinsson, 12 ára strákur við Fréttablað Suðurlands. Hann hefur á síðustu dögum farið tvisvar holu í höggi á Svarfhólsvelli á Selfossi.

Bæði höggin voru á móti vindi á þriðju braut, um 80 metra löng. „Ég stefni á landsliðið, það er ekki spurning,“ bætti þessi ungi og efnilegi kylfingur við sem vakið hefur mikla athygli á golfvellinum. Þjálfarar hans eru Gylfi Sigurjónsson og Hlynur Geir Hjartarson sem varð stigameistari á Kaupþingsmótaröðinni á síðasta keppnistímabili.

Myndir/Magnús Hlynur: Símon Leví Héðinsson er svo sannarlega efnilegur kylfingur.