Fréttir | mánudagur 22. júní 2009 | 12:58
Tvö vallarmet og holur í höggi
Kylfingurinn Ólafur Björn Loftsson úr NK setti nýtt vallarmet á Ásatúnsvelli hjá golfklúbbi Ásatúns á laugardaginn. Hann lék á 71 höggi eða einu höggi undir pari en hann var við keppni á Jónsmessumóti GÁS.
Anna Jódís Sigurbergsdóttir GK setti einnig vallarmet um helgina en hún lék á 70 höggum eða á pari á Víkurvelli á laugardaginn. Hún bætti fyrra vallarmet Þórdísar Geirsdóttur GK um fjögur högg en Anna Jódís var við keppni á Hótel Stykkishólmur – opið mótinu.
Jens Ingvarsson GKJ hélt uppá Þjóðhátíðardaginn 17. júní með því að fara holu í höggi á 8. holu Hlíðavallar. Notaði hann 8 jánið í höggið en holan er ein af nýju holum vallarins og er um 140 metrar að lengd af gulum teigum.
Árni Guðjónsson, einn af máttarstólpum Golfklúbbs Norðfjarðar fór holu í höggi í blíðskaparveðri á sunnudaginn var þann 21. júní. Það varð auðvitað mikil gleði og gálgahúmor í hollinu þegar komið var á níundu flötina og ljóst varð að boltinn var í holunni.
Kylfingur.is óskar öllum þessum einstaklingum til hamingju með afrekin.
Mynd/Kylfingur.is: Ólafur Björn Loftsson setti nýtt vallarmet á laugardaginn.