Fréttir | mánudagur 22. júní 2009 | 11:22

John Daly í tjóni


Það er sjaldan ein báran stök í kringum John Daly og nú fyrir skömmu lenti hann í umferðaslysi. Hann var í umferðinni á rútunni sinni og ætlaði að keyra í gegnum göng í Alabama. Þau voru hins vegar of lítil fyrir stóra farartækið hans og skall hann því af nokkrum þunga á göngin með þeim afleiðingum að þakið fór af rútunni.

Hann var ásamt dóttur sinni á leiðinni til Flórída en þau sakaði ekki í þessum árekstri. „Ég hef keyrt rútu í 17 ár en aldrei lent í neinu eins og þessu. Það voru enginn skilti sem gáfu aðvörun um að rúta kæmist ekki í gegn. Ég er vanur að lesa skiltin mjög vel en það voru enginn. Áður enn ég vissi af þá var þakið farið af rútunni,“ sagði Daly sem tvisvar hefur hampað sigri á risamóti.

Daly mun keppa í Evrópu næsta mánuðinn og verður með á BMW International Open mótinu í Þýskalandi sem hefst á fimmtudaginn. Hann verður einnig með á Opna breska þar sem hann sigraði árið 1995.

Mynd/golfsupport.nl: John Daly lenti í umferðarslysi á dögunum.