Fréttir | miðvikudagur 17. júní 2009 | 13:51

Amy vill bikarinn!


Amy Mickelson, eiginkona Phil Mickelsons, hvetur sinn mann ákaft til dáða á US Open sem hefst á Bethpage-vellinum á morgun, þrátt fyrir að hún geti ekki verið við hlið hans sökum veikinda.

Mickelson hefur aldrei unnið US Open, sem er eitt af risamótunum fjórum, en hefur fjórum sinnum mátt sætta sig við annað sætið. Hann segir Amy ekki fara í grafgötur með það sem hún vill. „Hún hefur sent mér ótal minnismiða, SMS, kort og annars konar vísbendingar um að hún vilji fá verðlaunabikarinn upp á vegg á sjúkrastofunni. Ég ætla að reyna að sjá til þess að henni verði að ósk sinni.“

Eins og flestir vita greindist Amy með brjóstakrabbamein í síðasta mánuði og þrátt fyrir að læknar séu vissir um að þeir hafi fundið meinið á byrjunarstigi fer hún samt í aðgerð þann fyrsta júlí.

Mickelson hjónin hafa fengið ótrúlegan stuðning í baráttu sinni, bæði frá atvinnukylfingum sem og almennum aðdáendum og golfáhugafólki.

Á meðal þeirra sem hafa lýst yfir stuðningi við þau er Tiger Woods, en samband þeirra tveggja hefur oft virst nokkuð kalt í gegnum árin. Á blaðamannafundi í gær tjáði Tiger sig þó um málið og sagði að hann gæti ekki ímyndað sér hvernig það væri að reyna að einbeita sér að því að keppa með svona nokkuð hangandi yfir sér.

„Þetta er ekki auðvelt. Þegar pabbi var veikur var það öðruvísi og eðlilegra því foreldrar manns kveðja yfirleitt á undan manni, en þegar maki, sem þú ætlar að eyða ævikvöldinu með lendir í slíku... Ég get ekki ímyndað mér hvað hann þarf að kljást við á hverjum degi.“

Tiger bætti því við að hann og Elin, kona hans hefðu oft umgengist Mickelson hjónin í gegnum árin. „Amy er frábær kona og ég held mikið upp á stundirnar sem ég og Elin og þau Phil og Amy höfum átt saman við að spila golf eða borðtennis. Ég og allir aðrir vona að henni batni og verði fljótt kominn út á völlinn aftur.“