Fréttir | fimmtudagur 11. júní 2009 | 13:15
Sigurgísli lánaði Immelman kylfur
Sigurgísli Skúlason eigandi og framkvæmdastjóri Golfbúðarinnar í Hafnarfirði á skemmtilegt bréf frá Masters meistaranum Trevor Immelman innrammað á skrifstofunni sinni. Immelman kom í heimsókn snemma morguns í Golfbúðina til að fá kylfur til að keppa í Cannon mótinu árið 2004.
„Það eru ekki margir sem hafa fengið bréf frá Masters meistara sem byrjar á Dear Sigurgísli,“ segir Sigurgísli og hlær. „Ég lánaði honum kylfur fyrir Cannon mótið árið 2004. Hann kom kl. átta um morguninn en ég vissi nú ekki hver þetta var þegar hann kom til mín, enda ekki búinn að vinna mörg mót. Hann var hins vegar mjög viðkunnanlegur og þægilegur strákur. Golfsettið hans hafði ekki borist til Íslands og hann þurfti kylfur einn, tveir og þrír,“ sagði Sigurgísli en hvaða kylfur skyldi Immelman hafa fengið hjá honum?
„Hann fór í notaða rekkann hjá mér og tók þar notaðar blaðkylfur sem enginn vildi kaupa og ég man sérstaklega eftir því að hann sagðist nota 11° driver. Við fundum ekki þann driver en hann tók annan gráðuminni í staðinn. Við fundum svo brautartré, fleygjárn, pútter, poka og meira að segja skó handa honum,“ sagði Sigurgísli sem var ánægður með hvernig Immelman stóð sig í mótinu.
„Hann hafði aldrei séð né snert þessar kylfur og spilaði hálftíma seinna á Hvaleyrarvelli á 71 höggi eða á pari og vann mótið. Það eru nú ekki allir sem myndu þakka fyrir sig og ég virði það við hann. Svo fjórum árum síðar þá vinnur hann Masters mótið þannig að þá má segja að ég sé orðinn heimsfrægur,“ segir Sigurgísli og hlær.
„Ég var mjög ánægður með þegar hann vann Masters mótið. Þetta var geðþekkur strákur og var með engan hroka eða stjörnustæla þegar hann kom til mín. Hann féll bara í hópinn út á Keili og settist bara á meðal vallarstarfsmanna,“ sagði Sigurgísli að lokum.
Mynd/Kylfingur.is: Sigurgísli heldur hér á innrömmuðu tölvuskeytir frá Trevor Immelman sem vann Masters mótið í fyrra.