Fréttir | mánudagur 8. júní 2009 | 19:39

Harrington fallinn af topp-10


Padraig Harrington, sem unnið hefur þrjú risamót á síðustu tveimur árum, er fallinn út af topp-10 á heimslistanum eftir að hann komst ekki í gegnum niðurskurðinn um helgina á Memorial mótinu. Honum hefur gengið illa á þessu ári og ekki verið meðal tíu efstu í móti síðan í janúar og ekki komist í gegnum niðurskurðinn í þremur mótum af síðustu fjórum sem hann hefur tekið þátt í. Hæst komst hann í þriðja sæti listans í fyrra eftir að hann hafði unnið PGA meistaramótið, annað risamótið í röð.

Það var Bandaríkjamaðurinn Jim Furyk sem tók sæti hans á listanum en hann lenti í öðru sæti á Memorial mótinu í gær. Daninn Jeppe Huldahl var óvæntur sigurvegari á Opna velska mótinu á Evrópumótaröðinni en hann hafði aldrei komist í topp-10 á móti í 44 tilraunum. Hann fór upp um 175 sæti og situr nú í 202. sæti.

Tiger Woods styrkti stöðu sína á listanum með sigrinum á Memorial mótinu í gær en Phil Mickelson var kominn mjög nálægt honum á tímabili og hafði möguleika á að velta honum úr sessi. Hann er með 10,51 stig á toppi listans en landi hans Phil Mickelson er í öðru sæti með 8,14 stig.

Heildarstaðan

Mynd/golfsupport.nl: Það gengur illa hjá Padraig Harrington um þessar mundir.