GS_opindagur.leiran.2012mai

Fréttir | föstudagur 5. júní 2009 | 23:04

Pak og Pettersen efstar á State Farm Classic


Se Ri Pak frá Suður-Kóreu og Suzann Pettersen eru efstar eftir tvo hringi á State Farm Classic-mótinu á LPGA mótaröðinni. Þær eru á 10 undir pari, einu höggi á undan þéttum pakka kylfinga sem telur m.a. Kristy McPherson og Helen Alfredsson.

Nokkru neðar eru valinkunnir kylfingar líkt og Angela Stanford, Michelle Wie, Katherine Hull og Cristie Kerr, en þær eru allar í aðstöðu til að velgja toppunum undir uggum um helgina.

Athygli vekur að Brittany Lincicome, ein af sterkari kylfingum á mótaröðinni í ár og ein sú allra högglengsta, náði sér ekki á strik og er fallin úr leik í niðurskurðinum.

Staðan

Mynd: Suzann Pettersen