Forsíða | þriðjudagur 26. maí 2009 | 02:25
Mikið fjör í fyrstu umferð Meistaradeildarinnar í Leirunni
Fyrsta umferð Meistaradeildarinnar var leikin í Leirunni í dag. Nokkuð var um hrókeringar í liðum á síðustu metrunum, kynntir til leiks nýir varamenn og einhverjir sem ekki þóttu standa sig nógu vel á vellinum undanfarna daga voru látnir taka pokann sinn. Úrslit allra leikja og stöðu í riðlunum má sjá hér vinstra megin á síðunni, eða undir www.meistaradeildin.is. Þrenn aukaverðlaun voru í boði í 1. umferðinni, nándarverðlaun á 8. og 16. braut og fyrir lengsta teighögg næst línu á 18.braut. Skemmst er frá því að segja að keppnin um lengsta teighögg næst línu varð aldrei spennandi, því fyrsta högg mótsins á 18. braut, setti Agnar Hansson GR, því sem næst á línuna og það varð ekki bætt í 87 tilraunum annarra keppenda. Bjarni G. Bjarnason GR, gerði sé lítið fyrir og setti boltann 1,53 m frá stöng á 16. flöt og Arnar Freyr Jónsson, betur þekktur sem körfuboltakappi úr Grindavík setti boltann 3,17m frá stöng á 8. flöt. Þessir verðlaunahafar fá send heim verðlaun frá Meistaradeildinni í lok vikunnar.
Sérstök aukave
rðlaun eru veitt fyrir lið umferðarinnar. Það lið sem náði bestum árangri í 1. umferð var lið Kylfings.is, eingöngu skipað heimamönnum í Leirunni þeim Páli Ketilssyni, Gylfa Kristinssyni, Garðari K. Vilhjálmssyni og Guðbirni Garðarssyni, en þann síðastnefnda má sjá hér á myndinni undirbúa teighögg á 16. braut. Fleiri myndir frá 1. umferð verða birtar hér á síðunni innan tíðar.