Golfpenni Sigurpáls | mánudagur 25. maí 2009 | 10:54
Að ná betri árangri í mótum

Æfðu undir pressu
Þegar menn spila golf með félögunum er yfirleitt spilað með léttu ívafi. Þegar menn spila svona hringi er engin pressa á mönnum og oft kemur gott punktaskor á svona hringjum. Mótin eru svo yfirleitt allt annar handleggur. Þar kemur oft pressa á menn og menn fara að vanda sig meira sem einungis eykur líkurnar á að gera mistök. Mitt ráð við þessu er að setja ykkur alltaf markmið fyrir æfingahringi. Markmiðið getur verið t.d. að fá 36 punkta. Það virkar einnig vel að ákveða fyrir hvert högg hvernig þið ætlið að framkvæma það og setja þannig pressu á ykkur sjálf fyrir höggið. Ef þið náið að æfa ykkur undir pressu eykur það líkurnar til muna að þið skilið betri árangri þegar í mótið kemur.
Ekki lengja rútínuna í mótum
Oft lenda menn í að lengja rútínuna sína í mótum án þess að taka eftir því. Það versta sem menn gera í mótum er að fara að taka sér meiri tíma í að slá höggin en venjulega. Ekki taka þrjár æfingasveiflur í mótum ef þið eruð vön að taka eina. Sumir fara eflaust að skoða púttlínur frá öllum hliðum þegar kemur að móti eða taka 5 æfingastrokur. Af hverju að gera það í móti ef menn gera það ekki við æfingar? Að mínu mati eykur þetta bara óvissuna um hvernig flötin hallar. Mín ráðlegging er að skoða púttlínur nákvæmlega eins í mótum og þegar menn eru að leika sér. Ef menn eru í miklum vafa með púttlínuna er sjálfsagt að skoða hana bæði aftan og framan frá. Ef þið farið að gera hlutina á annan hátt í mótum en dags daglega er líklegt að þið skorið ekki jafn vel. Í stuttu máli skora ég á ykkur að hafa ykkar rútínu stutta og markvissa fyrir hvert einasta högg og gera hana alltaf eins, LÍKA Í MÓTUM.
Kær kveðja
Siggi Palli
Mynd: Frá Opna breska mótinu á St. Andrews. Það fylgir því mikil pressa að leika á stærstu mótunum fyrir atvinnumennina eins og t.d. á Opna breska en sama gildir um áhugamennina, þeir vilja standa sig vel á mótum en margir eiga erfitt með að höndla álagið.