Senda á Facebook " />

Fréttir | fimmtudagur 21. maí 2009 | 14:02

Rory veldur fjaðrafoki


Þrátt fyrir ungan aldur er Rory McIlroy ekki hræddur við að tjá skoðainr sínar á hlutunum og olli þó nokkru fjaðrafoki á dögunum þegar hann gerði lítið úr Ryder-bikarnum og sagði það vera meira sýningu en nokkuð annað. Áhersla hans væri á árangur í einstaklingskeppnum og sérstaklega á stórmótum.

Þessi ummæli hafa sætt gagnrýni úr ýmsum áttum þar sem eldri og reyndari kylfingum finnst Rory ekki sýna mótinu tilhlýðilega virðingu. Kallar þetta upp minningar um annan ungan kylfing, Tiger Woods, sem sagði aðspurður fyrir nokkrum árum að hann sæi um það bil milljón ástæður fyrir því að hann vildi frekar vinna einstaklingskeppnir en Ryder-bikarinn. Þar vísaði hann til þess að hann fengi um milljón dala í verðlaunafé á einstaklingsmótunum.

McIlroy hefur neitað að draga ummælin til baka, en sagði fyrr í dag að ef til vill myndi honum snúast hugur þegar hann tæki þátt sjálfur.

„Þegar að því kemur verð ég kannski spenntur eða taugaveiklaður, en það sem ég var að reyna að segja var að takmark mitt á ferlinum er að vinna risamót, en ekki Ryder-bikarkeppnir. Þegar ég var krakki að æfa mig á púttflötunum, ímyndaði ég mér ekki að ég væri að pútta fyrir sigri á Ryder, heldur á Opna breska eða Masters. Það er bara mín afstaða.“

Englendingurinn Owen Wilson er á meðal þeirra sem hafa látið í sér heyra um málið en hann sagðist viss um að Rory ætti eftir að sjá eftir þessum ummælum. „Ryder-bikarinn er það sem kveikti áhuga minn á golfi. Ég fór með mömmu þegar ég var tíu ára á Belfry og man eftir að hafa horft á Seve og Faldo. Andrúmsloftið þar var ótrúlegt. Síðan þá var það mitt takmark að keppa á Ryder-bikarmóti og það hefur keyrt mig áfram á ferlinum. Það er kannski öðurvísi með Rory sem hefur afrekað meira en ég á hans aldri, hann er kannski að hugsa um aðra hluti.

Þegar hann verður með á næsta ári, og ég er handviss að hann verður í liðinu, mun hann sjá eftir ummælunum því hann mun sjá hvaða þýðinugu þessi keppni hefur. Andrúmsloftið, félagsskapurinn, þetta er ólíkt öllu öðru. Þetta er næstum eins og að tilheyra fjölskyldu.“

Mark Reason, pistlahöfundur Daily Telegraph, beinir orðum sínum að Rory þar sem hann biður hann vinsamlegast að hugsa aftur til þeirra sem gerðu evrópskt golf að því sem það er í dag, þar á meðal Seve Ballesteros.

Rory ætti að spurja Seve hvort honum þætti Ryder-bikarinn vera sýning.
Senda á Facebook