Meistaradeildin | miðvikudagur 13. maí 2009 | 07:36

Meistaradeildin reglugerð


Meistaradeildin í golfi

Reglugerð

Þátttakendur:
Heimild til þátttöku hafa kylfingar sem við upphaf mótaraðarinnar hafa forgjöf frá 3,5 til 20,4 og hafa náð 18 ára aldri.  Meistaradeildin er vettvangur fyrir kylfinga sem vilja keppa og hafa gaman af keppni.  Þátttakendur þurfa að vera vanir kylfingar og geta haldið uppi ásættanlegum leikhraða í spennuþrunginni keppni.  Eins og forgjafarmörk gefa til kynna hafa bestu afreksmenn ekki rétt til þátttöku.  Því er keppnin hugsuð sem vettvangur fyrir keppnismenn – en ekki endilega afreksmenn. 

Forgjöf:
Hámarks gefin forgjöf er 18 högg, eða 1 högg á holu.  Að öðru leyti ræðst vallarforgjöf skv. reglum EGA.  Holukeppni er leikin með fullri forgjöf að hámarki 18.

Teigar:
Karlar leika af gulum teigum, konur af rauðum teigum.

Liðsskipan:
Fjórir leikmenn skipa lið.  Heimilt er að skrá tvo varamenn til leiks.  Hver leikmaður má aðeins leika með einu liði og sama gildir um varamenn.  Hvert lið skipar fyrirliða sem er ábyrgur fyrir sínu liði, og sér um samskipti við mótsstjóra.  Hverju liði er skylt að hafa nafn.  Mælst er til að liðsmenn klæðist sama lit í keppni.  Liðum er heimilt að hafa styrktaraðila og bera auglýsingar á búningum sínum.

Keppnin reynir ekki aðeins á golfhæfileika, heldur einnig herkænsku.  Uppstilling liðsins getur verið það sem skiptir höfuðmáli.

Keppnisfyrirkomulag:
Leikið er í 4 liða riðlum.  Leiknar eru 3 umferðir. Ein í maí, ein í júní, ein í júlí.  Úrslit eru leikin í ágúst.  Efstu tvö liðin úr hverjum riðli kemst í úrslit. 

Á eftir að staðfesta:
25. maí – GS kl. 17:30
22. júní -  GÞ kl. 17.30
20. júlí – GKB  kl. 17:30

22.ágúst - GS úrslit. 8:00
(Miðað er við að ná að lágmarki 16 liðum en að hámarki 40 liðum)  Verði þátttaka umfram 20 lið, verður að skipta umferðum, þannig að leikdagar verða fleiri.

Riðlakeppni
Holukeppni:
Leikin er holukeppni milli liða – bæði með og án forgjafar.
Sex vinningar eru í boði í hverjum leik. 
1. Tveir liðsmenn leika “tvímenning” (singles) 2 x 9 holur.  Skipt um mótherja eftir 9 holur. Tveir leikjanna skulu leiknir án forgjafar og tveir með forgjöf. Allar holur telja þannig að hægt er að vinna 9-0, 8-1, 7-2, o.s.frv. Fjögur stig í boði í tvímenningi, tvö í hvorum leik.
2. Tveir liðsmenn leika saman, fjórmenning holukeppni á fyrri 9 (1- stig), betri bolti með forgjöf, holukeppni á seinni 9 (1 - stig), samanlagðir punktar með forgjöf.  Eins og í tvímenningnum, þá telja allar holur. 
a. Hér skal tekið til greina að lið getur sent einungis 3 menn til leiks í umferð. Þá mun einn leikmaður leika á móti tveimur fjórmenningi. 
3. Liðum sem skrá til leiks varamann/menn, er heimilt að skipta þeim inná, eftir  9 holu leik, þ.e. á milli umferða

Þegar leik er lokið þá hefur lið bæði unnið sér inn stig og hefur “markatölu” sem í raun eru samanlagðar holur unnar og tapaðar í heildina.  Þannig getur lið sem ekki tapar einni einustu holu haft í lok umferðar 6 stig og markatöluna 54-0.

Tvö efstu liðin í hverjum riðli að loknum þremur umferðum komast í Úrslit.

Aukaverðlaun í hverri umferð
Nándarverðlaun:
Á tveimur par 3 holum í hverri umferð

Lengsta teighögg næst línu:
Á einni braut í hverri umferð

Lið umferðarinnar:
Það lið sem skorar best (fær flest stig og er með bestu „markatöluna“)


Úrslitaumferð:
Leikinn er 18 holu höggleikur.  Þrjú skor telja.  Tvö bestu með forgjöf og besta skor án forgjafar.  Skorin raða liðum í töluröð.  Efstu tvö liðin leika holukeppni til úrslita með sama fyrirkomulagi og í riðlakeppninni, tvö næstu lið leika um þriðja sæti of svo koll af kolli.  Verði um oddatölu að ræða mun það lið sem aftast er í röðinni ekki leika um sæti.  Verði fleiri en 10 lið í úrslitaumferðinni, þá munu þau lið sem lenda í 11. sæti og aftar eftir höggleikinn ekki leika holukeppni í úrslitunum.

Sigurliðið fær í mótslok til varðveislu Meistaradeildarbikarinn.

Bikarkeppni:
Bikarkeppni Meistaradeildarinnar verður auglýst síðar.
Aukamót. – Höggleikur – einstaklings og liðakeppni.
Liðið sem þar ber sigur úr býtum verður Bikarmeistari Meistaradeildarinnar.

Leikdagar:
Leikdagar verða á virkum dögum.  Leikur hefst á 18 holu velli utan höfuðborgarsvæðisins kl. 17:30 stundvíslega.  Ræst er út af öllum teigum í einu.

Vellir:
Hólmsvöllur í Leiru
Þorláksvöllur í Þorlákshöfn
Kiðjabergsvöllur í Grímsnesi

Aðrir vellir gætu bæst við verði þátttaka mikil.

Viðurlög:
Mæta of seint
Mæta ekki til leiks - sekt
Leikið á rangri forgjöf
Ósæmileg framkoma.
Athygli leikmanna er vakin á því að holukeppni á það til að kalla fram mun hærra spennustig en almennt gerist í höggleik.


Þátttökugjald:
Þáttökugjald fyrir alla mótaröðina er kr. 6.250 á mann eða 25.000 kr. á lið.  Kjósi lið að skrá til leiks varamann kostar það kr. 3.000 til viðbótar.  Heimilt er að skrá til leiks 2 varamenn í hvert lið.

Upplýsingar um stöðu:
Allar upplýsingar og stöðu verður að finna á vefsíðunni www.meistaradeildin.is og www.kylfingur.is

Teknar verða myndir af öllum liðum og ber þeim að fylla út upplýsingar sem birtar verða á heimasíðunni.

Kynningarfundur:
Kynningarfundur um mótið verður haldinn í golfskálanum í Grafarholti fimmtudaginn 14. maí..

Dregið í riðla – kynningarfundur 2:
Dregið verður í riðla á opnum fundi þann 22. maí.  Keppendum er öllum boðið að mæta á fundinn til að meta andstæðingana.   Umgjörð mótsins verður kynnt nánar við þetta tilefni.

Fyrirlestrar og sameiginlegur kvöldverður:
Í lok hverrar umferðar verður boðið uppá 20 mínútna fyrirlestur um málefni tengd golfi.  Á 19. holu viðkomandi vallar verður boðið uppá mat og mjöð á sanngjörnu verði.

Umsjónaraðili:
Umsjónaraðili Meistaradeildarinnar er 3pútt ehf. Mótsstjóri er Margeir Vilhjálmsson.  margeir@3putt.is, gsm 866-2100.

Skráning:
Tekið er við skráningu liða á netfangið margeir@3putt.is.  Skráning fer fram frá 4. maí til 21. maí.
Skráning er gild þegar þátttökugjald hefur verið greitt inn á reikning 1109-26-1884 kt. 530407-0630.

Gefa þarf upp við skráningu:
Nafn liðs
Nafn fyrirliða
Nöfn leikmanna, kennitölur, golfklúbb og forgjöf, netfang og símanúmer