Golfpenni Sigurpáls | fimmtudagur 23. apríl 2009 | 13:41
Algengustu mistök meðalkylfings
Meðalkylfingur að mínu mati er kylfingur sem er með forgjöf 15 til 25. Kylfingar á þessu forgjafarbili eiga oft erfitt með að brjóta múrinn og komast niður fyrir 15 í forgjöf og festast stundum árum saman á þessu bili. Til þess að ná 15 í forgjöf er nokkuð ljóst að sá einstaklingur getur vippað og púttað nokkuð vel. Það er afar erfitt að ná þessum áfanga og vera mjög lakur að vippa og pútta.
Algengasta orsökin fyrir því að margir komast ekki niður fyrir 15 í forgjöf er sú að tæknin í sveiflunni býður ekki uppá meiri forgjafarlækkun. Auðvitað er stutta spilið mjög mikilvægt, en ákveðnir sveiflugallar geta einungis komið kylfingi í ákveðna forgjöf áður en stöðnun á sér stað. Hvað er hægt að gera? Annaðhvort er að sætta sig við að fara ekki neðar en 15 í forgjöf eða fara til kennara og breyta sveiflunni.
Það er því miður allt of algengt að kylfingar komi til kennara eftir að hafa verið í basil með slæsið í mörg ár. Því lengur sem kylfingar spila með mikla sveiflugalla, því lengri tíma tekur að venja vöðva líkamans af þessum vitlausu hreyfingum. Það geta allir lagað sveifluna sína, en því fyrr því betra.
Margir kylfingar sem festast á umræddu forgjafarbili eru með sveifluferil sem er út-inn. Þegar sveifluferill er út-inn þýðir það kylfingurinn slær utan á boltann og torfufarið með járnunum vísar til vinstri miðað við höggstefnu. Í mörgum tilfellum er gripið líka vitlaust og oftast er það veikt á hægri og oft á vinstri líka. Þetta er að mínu mati lang algengasta villan hjá hinum almenna meðalkylfingi. Það getur tekið nokkra tíma að laga þessar villur, en ég hef líka oft fengið til mín nemendur sem ná þessu strax. Hafið torfuförin í huga ef þið eruð ósátt með sláttinn. Golfkennarar geta lesið mikð útúr því hvert torfuförin miða.
Kveðja frá Spáni
Siggi Palli