Forsíða | föstudagur 17. apríl 2009 | 16:39
Breyttu æfingum þegar sumarið nálgast

Það eru eflaust margir sem æfa sveifluna að einhverju leyti yfir vetrartímann. Það er hið besta mál að æfa yfir veturinn og í rauninni nauðsynlegt ef júní á ekki að fara í sveiflubreytingar og engar forgjafarlækkanir. Ef menn ætla að ná árangri snemma sumars er mikilvægt að byrja að æfa sveifluna ekki seinna en strax eftir áramót. Janúar, febrúar og mars eru fínir mánuðir til að bæta sveifluna. Ég hef séð að margir hafa verið að sækja æfingasvæðin undanfarnar vikur og reynt að bæta sveifluna, nú eða bara að liðka sig fyrir sumarið.
Ég mæli með að þegar tæknivinnu er að ljúka á æfingasvæðunum, vonandi um páskaleytið, fari menn að breyta æfingum hjá sér. Þá er gott að hætta að slá marga bolta í röð með sama járninu og fara að skiptast á. Gott væri t.d. að spila völl í huganum. Eftir góða upphitun væri fínt að taka t.d. eitt dræv, svo 9 járn og svo eitt chip. Í stuttu máli er mjög gott að slá mismunandi högg á mismunandi staði með mismunandi áhöldum, en forðast að slá með sama áhaldinu á sama staðinn oft í röð.
Með svona æfingum færast æfingarnar nær golfvellinum. Hafa ber í huga að útá velli slær maður aldrei tvö full 6 járn í röð og þess vegna skora ég á ykkur að taka svona æfingar inná milli. Ég er viss um að ef þið takið svona æfingar reglulega verðið þið betur undir það búin að fara útá völl og slá mismunandi högg allann hringinn. Það er alltaf gott að reyna að líkja æfingum á æfingasvæðum við golfvöllinn, því að golf er jú spilað á vellinum, en ekki á æfingasvæðunum.
Besta voræfingin að mínu mati er að fara útá völl með 3 bolta og spila. Mér finnst það rosalega góð æfing að spila með 3 boltum og keppa hvaða bolti vinnur. Þetta þarf auðvitað að gerast þegar það er lítil umferð um vellina, annaðhvort eldsnemma á morgnanna eða seint á kvöldin. Það er nauðsynlegt að slá á æfingasvæðunum yfir vetrartímann, en alveg jafn nauðsynlegt að líkja þeim æfingunum við spil og koma æfingunum útá völl eins fljótt og mögulegt er á vorin.
Með golfkveðju,
Siggi Palli