Golfpenni Sigurpáls | föstudagur 27. mars 2009 | 15:01

Af hverju slá flestir betur á æfingasvæðinu?


Margir kylfingar lenda oft í því að slá verr á vellinum heldur en á æfingasvæðinu. Þessi staðreynd er því miður ofboðslega algeng og þessi spurning er ofboðslega algeng hjá mínum nemendum. Það eru nokkrar ástæður fyrir þessu og það er hægt með réttu hugarfari og góðri þjálfun að bæta sláttinn á golfvellinum til muna.

Fyrsta ástæðan fyrir betri slætti á æfingasvæðinu er sú að ef högg heppnast ekki á æfingasvæðinu þá slærðu bara annan og vonandi heppnast hann betur. Þetta er því miður ekki hægt útá velli. Gott ráð við þessu er að reyna að líkja æfingasvæðinu við völlinn, þ.e.a.s. búa til mark og setja pressu á sjálfan sig að hitta á markið. Þetta mark gæti t.d. verið 5% skekkja til beggja átta frá flagginu sem slegið er á. Sé þetta gert er komin smá pressa um að hitta á ákveðinn stað.

Önnur ástæða sem nefna mætti er sveifluhraðinn. Sveifluhraðinn er nánast alltaf meiri útá velli en á æfingasvæðinu. Reynið að halda rólegu tempói útá velli, t.d. með því að hugsa eingöngu um rólega og yfirvegaða æfingasveiflu. Róleg æfingasveifla sem endar í góðu jafnvægi eykur til muna líkurnar á að höggið sjálft verði slegið með góðum og passlegum sveifluhraða.

Þriðja atriðið sem ég ætla að tala um er að mínu mati það mikilvægasta af öllu. Ég er að tala um áreiti sem kylfingar verða fyrir á vellinum. Það eru mörg áreiti sem kylfingar verða fyrir útá velli. Þessi áreiti eru t.d. vindur, glompur, vötn, tré, utanvallar, meðspilarar, spilahraði og svo mætti lengi telja. Þegar þessi áreiti dembast yfir kylfinga hvert af öðru og festast í huga okkar, er mjög líklegt að sveifluatriðin sem hugsað er um á æfingasvæðinu detti neðst á listann yfir atriði sem hugsað er um. Ákvarðanir þarf að taka með hliðsjón af sumum þessara atriða. Eftir að ákvörðun hefur verið tekin verðum við að reyna að ýta öllum áreitum burt og hugsa aftur að sveifluatriðunum.


Dæmi: Kylfingur spilar par 3 holu sem er 145 metrar að lengd. Fyrir framan flötina er vatn og því vandasamt högg fyrir höndum. Mig grunar að hjá mörgum beinist hugsunin ansi mikið að vatninu. Kemst ég yfir vatnið? Fer ég í vatnið? Ég verð að komast yfir vatnið. Ég fer örugglega í vatnið. Vá hvað þetta er erfitt högg.
Ef einhver af þessum hugsunum festist í kollinum er nánast öruggt að sveifluatriðin gleymast og að höggið verði dapurt.

Ég skora á ykkur að reyna að útiloka allar neikvæðar hugsanir sem dembast yfir ykkur útá velli. Ef þið náið að ýta þessum áreitum frá ykkur og halda sveifluatriðunum efst á listanum eru miklar líkur á að slátturinn á vellinum verði jafn góður og á æfingasvæðinu. Þetta er gríðarlega mikilvægt því hafa skal í huga að golf er spilað útá velli, en ekki á æfingasvæðinu.

Kær kveðja
Siggi Palli