Forsíða | laugardagur 21. mars 2009 | 18:18
Hvernig getur maður bætt púttin?

Það eru til margar leiðir til að bæta púttin. Púttin eru mjög mikilvæg þar sem þau telja rúm 40% högga hjá flestum golfurum.
Fyrsta atriðið er að vera með pútter sem hentar þinni stroku og ekki síður mikilvægt er að pútterinn sé í réttri lengd. Ég hef fengið til mín marga nemendur sem hafa verið með allt of langan pútter fyrir þeirra tækni. Í langflestum tilfellum hafa púttin skánað mikið hjá þessum nemendum eftir að hafa prófað minni pútter. Í þessum pistli ætla ég að gefa ykkur nokkra góða punkta varðandi púttin.
Stutt pútt
Stuttu púttin eru mjög mikilvæg. Það þekkja það allir hvað það er hrikalega svekkjandi að missa pútt sem er 1 metri að lengd eða jafnvel styttra.
Ein góð aðferð við að auka sjálfstraustið í stuttu púttunum er að æfa þessar vegalengdir með því að pútta í tí. Ef þið æfið að pútta stutt pútt í tí reglulega ætti það að auðvelda ykkur að hitta í holuna þegar út á völl er komið. Best er að hugsa um að tíið ykkar sé á holubrúninni hinu megin við ykkur. Ég er sannfærður um að þetta lagar hjá ykkur stuttu púttin.
Lengdarstjórnun
Lengdarstjórnun er mikilvægur þáttur í að vera góður að pútta. Það er nokkuð algengt að sjá kylfinga taka pútterinn allt of langt aftur og stoppa svo rétt eftir að kúlan er hitt. Það er mjög mikilvægt að fylgja vel á eftir öllum púttum og forðast það eins og heitan eldinn að banka í kúluna og stoppa pútterinn of fljótt. Þið getið bætt ykkar lengdarstjórnun í púttunum ef þið skoðið eftirfarandi. Hafið sama tempó í öllum púttum. Ef púttið er stutt, farið þá stutt aftur og fylgið vel á eftir púttinu. Ef púttið er langt, farið þá lengra aftur og fylgið vel á eftir. Þetta hljómar einfalt en getur tekið smá tíma að venjast.
Meginreglan er sem sagt sú að stilla lengd strokunnar eftir lengd púttsins, en halda sama tempóinu bæði í eins metra pútti og fimm metra löngu pútti.
5% reglan
Ég skora á ykkur að nota 5% regluna til að athuga hvort ykkur fer fram í púttunum. Þetta er einfalt í notkun og tekur 5 mín. að skoða. Takið t.d. 10 metra pútt og þá hafið þið 50 cm. frá holunni á alla kanta, stutt, langt, vinstra og hægra megin. Best er að taka 10 bolta og sjá hversu marga þú hittir inní kassann. Skráðu einnig hvort þú ert að klikka á lengdinni eða stefnunni. Þetta er frábær leið til að athuga hvort ykkur fer fram á milli æfinga. Ef þið takið þetta próf, á flöt sem þið eruð vön að pútta á, og náið 2 boltum inní kassann eða minna getið þið haft samband við mig og ég skal hjálpa ykkur að laga púttin.
Snjóleysiskveðja, Siggi Palli