GS_opindagur.leiran.2012mai

Forsíða | föstudagur 13. mars 2009 | 13:55

Mældu hvað þú slærð langt


Hvað ætli það séu margir kylfingar sem vita hvað þeir slá langt með hverri kylfu fyrir sig? Sennilega eru ekki margir meðalkylfingar sem vita það nákvæmlega. Er mikilvægt að vita lengdirnar með hverri kylfu? Svarið er JÁ.
Ég ætla að deila með ykkur hvernig ég mæli lengdirnar hjá mér. Fyrst þarf að finna tún þar sem maður getur verið með sína eigin bolta og í friði, t.d. æfingasvæðið hjá Korpunni. Í öðru lagi þarf að vera logn, því vindur gefur augljóslega villandi upplýsingar um lengd höggana. Í þriðja lagi þarf að vera þokkalegur hiti, a.m.k 10 gráður, því kuldi styttir boltaflugið. Þetta er semsagt ekki hægt nema um það bil 5 daga á ári hér á Íslandi:)
Gott er að vera tveir saman að mæla lengdirnar hjá hvor öðrum. Fyrst slær annar einstaklingurinn 10 högg t.d. með PW. Ef kylfingurinn telur sig slá 100 metra með PW, þá stendur hinn aðilinn 100 metra frá þeim sem slær.  Eftir hvert högg gefur sá sem slær merki um hvernig hann hitti bltann, vel eða ílla. Þá skrefar mælingamaðurinn + eða – metra frá 100 metrunum eftir því hvar boltinn lendir. Eftir að hafa slegið 10 högg og lengdirnar mældar eru niðurstöðurnar komnar. Eftir þetta er meðaltalið reiknað út af vel hittum boltum og þeim sem voru ekki vel hittir. Núna hefur þessi einstaklingur tvær lengdir með PW.  Þessar lengdir gætu t.d. verið 104 metrar þegar vel er hitt og 92 metrar þegar ílla er hitt.  Þessar mælingar er gott að gera með öllum kylfum í pokanum og þá ættu menn að hafa 2 vegalengdir með öllum kylfum, bæði fyrir góða og slæma daga.
Ég er nokkuð viss um að það eru einungis örfáir einstaklingar sem hafa gert svona mælingar og enn færri sem gera þær reglulega. Ef þið viljið lækka forgjöfina ykkar og bæta ykkur sem kylfingar skora ég á ykkur að mæla ykkar vegalengdir og hafa þær á blaði í pokanum ykkar þegar þið spilið. Það er ekki hægt að fara fram á nákvæmni í lengdarstjórnun ef kylfingur segist slá 120 til 140 metra með 7 járni. Það hjálpar líka mikið til með sjálfstraustið að hafa lengdir á hreinu og geta treyst því að á góðum degi slái maður 155 metra með 6 járni, en ekki 140 til 160 metra. Þetta var aðeins einn af mörgum punktum sem hafa þarf í huga til að ná árangri, alveg sama á hvaða getustigi ykkar golf er á.

Golfkveðja,
Siggi Palli.


 

Tiger Woods er ásamt fleiri atvinnumönnum með það á tandur hreinu hversu langt hann slær með hverri kylfu í pokanum og það veit Steve Williams kylfusveinninn hans líka.