Forsíða | mánudagur 9. mars 2009 | 21:27

Meistaradeildin í golfi


Er það bara ég eða eru aðrir sammála mér um að keppnisgolf á Íslandi hafi staðnað. Við höfum stigamótaröð GSÍ, sem síðast hét Kaupþingsmótaröðin, Íslandsmótin í höggleik og holukeppni. Sveitakeppnir eru svo liðakeppnir klúbbanna. Öll þessi mót eru miðuð við afrekskylfinga og er það vel. Meðalskussarnir eins og ég, aðeins yfir kjörþyngd, með 4 í forgjöf, rétt yfir léttasta skeiði höfum tvö mót á ári sem hægt er að mæta í og keppa fyrir alvöru, Meistaramót klúbbsins og Íslandsmót 35 ára og eldri.  Svo er náttúrlega aragrúi af opnum mótum sem ég flokka frekar undir „félagslega samkomu“ heldur en golfmót. Ég hef séð á spjallinu að menn hafa verið að reyna kalla saman eitthvað sem þeir kalla „Utandeildina“, en hún virðist ekki hafa náð flugi.

Mig langar því að kasta fram hugmynd til kylfinga á Íslandi og bið menn um að vera ófeimna að tjá sig um hana á spjallinu eða bara senda mér línu á netfangið kylfukast@kylfingur.is og kannski að við getum sameiginlega rissað upp mótaröð sem ég hef kosið að kalla „Meistaradeildin í golfi“.  Mér finnst það nefnilega hljóma mjög vel þegar ég segi frá afrekum mínum á vellinum að ég hafi verið að keppa í „Meistaradeildinni“.  Eins t.d., „Djöfull lenti ég í því í Meistaradeildinni um helgina, sjankaði drævið út í skurð og fékk áttu“, eða bara „Kallinn með holu í höggi í Meistaradeildinni“.  Þetta gefur án nokkurs vafa mun meiri vigt í mikilvægi áhugamálsins hjá þeim sem eru 18 ára í anda, en líkaminn því miður kominn á fjórða eða fimmta áratuginn.  Tala nú ekki um þann sjötta.

Ég sé fyrir mér meistaradeildina bæði sem einstaklings- og liðakeppni. Segjum t.d. að fjórir leikmenn myndi saman lið. Hvert lið verður að hafa nafn og kannski mætti setja takmarkanir á fjölda kylfinga í liði með undir 3 í forgjöf.  Tvö bestu skorin í hverjum móti telja í liðakeppninni, bæði með og án forgjafar.  Því er ekki nauðsynlegt að allir leikmenn liðsins mæti til keppni í öllum mótunum, en allavega tveir verða að mæta í hvert mót.  Mótin yrðu 4-8 talsins. Nokkrir aukaleikir væru svo settir upp í hverjum móti, þannig að lið keppa innbyrðis í nokkurskonar deild sem er eins og deildakeppni í knattspyrnu.  Hvert lið myndi skrá sig til leiks í upphafi sumars og greiða þátttökugjald.  Leikið yrði á mánudögum, þriðjudögum og miðvikudögum.  Ef þátttaka er framúr hófi góð verður skipt í riðla og leikið á fleiri en einum velli í einu.  Staða og skor yrðu birt á vefsíðunni www.kylfingur.is .Leikið verður t.d. á Þorlákshöfn, Hellu, Flúðum, Leirunni, Jaðarsvelli, Garðavelli, Vestmanneyjum, Borgarnesi, Kiðjabergi og Öndverðarnesi eða í stuttu máli á 18 holu völlum utan höfuðborgarsvæðisins.

Þessi mótaröð verður að veruleika í sumar fáist góðar undirtektir.  En nóg að sinni. Boltinn yfir til ykkar.


Með golfkveðju,
Margeir Vilhjálmsson

Mynd: Bergvíkin er meðal þeirra golfhola sem lagt er til að leiknar verði í Meistaradeildinni.