Forsíða | föstudagur 6. mars 2009 | 13:25
Skráðu tölfræði og æfðu veikleikana
Það er mjög mikilvægt að skrá tölfræði þegar kylfingar spila golfhringi. Tölfræði segir okkur mjög margt um hvað mætti vera betra útá golfvelli. Það er ómögulegt að muna hvað var gott og hvað var ekki nógu gott og því mjög gott að geta flett þessu upp í tölvu eða bók til að skoða hvað þarf að æfa næst þegar æft er. Ég ætla að taka lítið dæmi hér að neðan og sýna ykkur hvað væri gott að leggja áherslu á í þessu tilfelli. Þetta dæmi er raunvörulegt og er tölfræði kylfings með +1 í forgjöf árið 2008.
Meðalskor 72,5
Hittar brautir 51,6%
Hitt green 67,3%
Pútt 30,9
Pútt regulation 1,855
Birdie á hring 3,5
Þessi tölfræði er nokkuð góð, en samt ekki nógu góð til þess að þessi ákveðni einstaklingur næði sínum markmiðum. Hans helsti veikleiki er að hann hittir ekki nógu margar brautir. Það er ekki ásættanlegt hjá manni með +1 í forgjöf að hitta um helming brauta. Það er því augljóst að hann þarf að laga upphafshöggin eða kannski fara að breyta um áhöld sem notað er á teig, t.d. taka oftar 3 tré eða járn. Ef þessum einstaklingi tækist að auka hittar brautir uppí 64%, eða um 9 brautir af 14, myndi restin af tölfræðinni að öllum líkindum lagast. Þessi kylfingur myndi þá örugglega hitta fleiri flatir því nú slær hann 9 sinnum af braut í stað 7 skipta. Þessi kylfingur er góður að pútta, en ekki sá allra besti. Ég myndi því ráðleggja honum að æfa vel wedge höggin inná flatirnar. Ef þessi högg enda nær holunni ætti ekki að vera flókið að fækka púttum um 1 á hring. Passið ykkur á því að vera ekki of fljót að dæma ykkur léleg að pútta. Skoðið fyrst hversu nálægt holunni þið eruð að hitta. Það er mjög erfitt að sýna góða pútttölfræði ef innáhöggin enda oft mjög langt frá holunni.
Prófaðu þig í lok hverrar æfingar
Það er mikilvægt að fara til golfkennara reglulega og láta líta á sveifluna, nú eða einhverja hluta stutta spilsins. Eftir að golfkennarinn ykkar hefur gefið ykkur punkta til að vinna með er hægt að fara að æfa og vonast eftir árangri. Ég skora á ykkur lesendur góðir að taka upp þann góða sið að enda æfingar á að prófa ykkur með svokallaðri 5% reglu. Þessi æfing þýðir að þið hafið 5% af lengd höggs í skekkjumörk til beggja átta.
Dæmi: Jón er að æfa 100 metra högg. 5% af 100m. eru 5m. Þetta þýðir að hann má missa boltann 5 metra til vinstri og 5 metra hægra megin við skotmarkið. Ég skora á ykkur að taka alltaf síðustu 10 bolta hverrar æfingar, prófa ykkur og skrá niður hversu margir boltar lenda innan þessara marka. Þetta er hægt að gera með nánast öll högg. Ef kylfingur slær 250 metra með driver hefur hann 12,5 metra til hægri og vinstri. Ef þið viljið æfa 10 metra vipp hafið þið 0,5 metra í hvora átt. Eftir nokkur skipti getið þið séð svart á hvítu hvort ykkur er að fara fram eða ekki. Flestir vilja bæta sig og það næst betur ef hlutirnir eru unnir skipulega og tölurnar skrifaðar niður.
Kveðja, Siggi Palli
