Forsíða | föstudagur 27. febrúar 2009 | 15:43
Hvernig hitar þú upp?

Það er mjög misjafnt hvernig kylfingar hita upp fyrir golfhring í móti. Kylfingar hafa mjög mismunandi aðferðir við að hita sig upp og sumir jafnvel hita alls ekki upp. Ég mæli eindregið með því að menn hiti upp fyrir alla golfhringi sem þeir spila. Margir hita upp með því að slá eina körfu og fara svo á teig, aðrir teygja sig aðeins á 1. teignum og sumir pútta og vippa í tíu mínútur áður en lagt er af stað. Allt eru þetta aðferðir sem hjálpa til við að gera kylfing tilbúinn fyrir golfhring og ættu að auka möguleikana á að vera tilbúinn fyrir hringinn strax á 1. teig. Að mínu mati eru þessar þrjár upphitunaraðferðir sem ég nefndi fínar ef þær eru settar saman í eina upphitun. Þá er spurning hvað á að gera fyrst og á hverju á að enda?
Mín upphitunMín skoðun er sú að það er best að byrja á því stutta og enda á því langa. Ég byrja alltaf á því að pútta, fyrst stutt pútt og svo löng pútt. Eftir það fer ég í vippin og eyði tíu mínútum í þau. Pútt og vipp upphitun tekur um fimmtán mínútur og þá fer ég á æfingavæðið og teygi í fimm mínútur. Ég byrja alltaf á því að leika mér með SW og PW í nokkrar mínútur og enda á því að slá nokkur full högg með þeim. Eftir það tek ég tvö til þrjú högg með 9-7-5 og 3 járni. Ég passa mig á því að slá ekki fleiri högg með hverri kylfu, því þetta er upphitun en ekki æfing. Í lokin tek ég tvö til þrjú högg með öllum trékylfunum mínum og enda á driver. Eftir þetta tek ég tvö til þrjú högg með þeirri kylfu sem ég ætla að nota á 1. teig ef það er ekki driverinn. Mér finnst svo mjög gott að pútta aftur nokkrum stuttum púttum rétt áður en ég fer á teig. Þessi pútt í lokin gera mig mjög afslappaðan og tilbúinn að fara á 1. teig. Þetta er upphitunar rútína sem ég hef þróað og breytt í gegnum árin. Hún tekur 45 mínútur og ég tel það fína lengd á upphitun. Það er mjög mikilvægt að menn komi sér upp ákveðinni aðferð við að hita upp og geri það alltaf mjög svipað. Það eykur líkurnar mjög mikið að ykkur líði vel, hvar sem þið eruð, ef þið getið gengið að ykkar rútínu fyrir keppnishring.
Ör hjartsláttur á 1. teigÞað er mjög eðlilegt að hjartsláttur kylfinga sé ör þegar fyrsta upphafshögg í móti er slegið. Í rauninni væri annað óeðlilegt. Þessi spenna og tilhlökkun er yndisleg, en þó getur tekið tíma að læra að framkvæma réttu hreyfingarnar undir pressu. Að vera vel undirbúinn eykur líkurnar til muna að ná góðum höggum undir pressu. Mig langar að segja ykkur frá einni æfingu sem hjálpar til við að ná fyrsta teighögginu í móti góðu. Prófið að spretta 100-200 metra á æfingasvæðinu og gangið svo beint á pallinn og sláið nokkur högg. Eftir sprettinn ætti púlsinn að vera kominn nálægt þeim hraða sem hann oft er á 1. teig í stóru móti. Svona getið þið æft ykkur að slá með hraðan púls, einfalt og gott ?
Golfkveðja
Siggi Palli