Forsíða | föstudagur 20. febrúar 2009 | 17:14

Hvar er hugurinn á golfvellinum?


Hvar er hugurinn?
Á mínum ferli sem afrekskylfingur hef ég oft staðið mig að því að hugurinn er farinn eitthvað allt annað en þar sem hann á að vera.Hvað veldur því er ómögulegt að segja.  Þetta er atriði sem ég hef verið að vinna í undanfarin ár og ég myndi segja að það gangi þokkalega vel. Það er hreinlega ómögulegt að útiloka utanaðkomandi áhrif þegar menn fara í golf, s.s. gleymdi ég að fara í bankann, muna eftir mjólkinni á heimleiðinni, ekki gleyma að senda póst þegar þú kemur heim o.s.frv. Mitt ráð við þessum utanaðkomandi atriðum er að ganga frá öllu áður en þú spilar. Ef það er ekki hægt skaltu skrifa þetta í bók þannig að þessi atriði geti ekki verið að trufla þig útá velli.   Annað gott ráð er að finna sér eitthvert orð, eins og t.d. SEINNA.  Utanaðkomandi áhrif koma alltaf að manni útá velli, en ef menn geta ýtt þessu frá sér með einhverjum aðferðum er miklu líklegra að hugurinn sé á golfvellinum. Ef góður hringur á að nást verður hugurinn að vera með manni á vellinum.

Taktu ákvörðun áður en þú slærð
Annað mikilvægt atriði er að taka 100% ákvörðun áður en slegið er. Ég er handviss um að helmingur kylfinga efast um sína ákvörðun áður en slegið er. Ef kylfingur er í vafa um hvort hann hafi tekið rétta ákvörðun í sambandi við t.d. kylfuval, vind, kraft sveiflunnar o.s.frv. eru mjög litlar líkur á að höggið heppnist. Menn verða að taka ákvarðanir og fylgja þeirri ákvörðun 100%  í högginu. Svo verður að skoða það eftir höggið hvort ákvörðunin var rétt. Menn læra seint og ílla að taka réttar ákvarðanir ef menn eru í vafa þegar þeir slá. Taktu ákvörðun og láttu vaða!!!!!!!
Mig langar að segja ykkur frá aðferð sem ég kynntist fyrir nokkrum árum og hef notað mikið. Ég ímynda mér línu einn metra fyrir aftan boltann. Þegar ég stend fyrir aftan línuna mina tek ég allar ákvarðanir varðandi höggið sem ég er að fara að slá.  Eftir að ég geng að boltanum, og yfir þessa línu, eru allar ákvarðanir komnar á hreint.  Ég skipti ekki um skoðun þegar ég hef gengið að boltanum. Ef vafi kemur upp í hugann, þá bakka ég út fyrir línuna mína og endurkoða hvernig ég ætla að slá höggið.  Eflaust eru til margar leiðir til þess að tæma hugann fyrir högg, en þetta er ein leið og hún gæti vel virkað fyrir þig eins og mig .

Golfkveðja, Siggi Palli.

mynd/golfsupport.nl: Jesper Parnevik er djúpt hugsi á flötinni. Ætli hann sé með hugann einhvers staðar annars staðar. Sé að hugsa um bíómyndina frá kvöldinu áður eða ...?