Forsíða | sunnudagur 15. febrúar 2009 | 14:52
Kylfingur ber hálfa sök á að hafa slegið bolta í auga annars!
Hæstiréttur Íslands felldi síðastliðinn fimmtudag dóm, þar sem kylfingur sló bolta í auga annars árið 2002. Dómsorð Hæstaréttar er þannig:
Dómsorð: Viðurkennt er að stefndi, GG, beri skaðabótaábyrgð á helmingi þess tjóns sem áfrýjandi,GÓ, varð fyrir 16. nóvember 2002 á golfvelli Golfklúbbsins Kjalar í Mosfellsbæ, þegar stefndi sló golfbolta sem lenti í hægra auga áfrýjanda. Stefndi greiði áfrýjanda samtals 750.000 krónur í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétt
Einn dómari skilaði sératkvæði, þar sem hann taldi að staðfesta ætti dóm hérðaðdóms um að sýkna ákærða.
Það er eðlilegt að kylfingar velti fyrir sér hvað svona dómur þýði. Getur maður nú ekki leikið golf nema að vera tryggður í bak og fyrir. Í þessu tilfelli er talið að báðir beri sök, þar sem GÓ stendur í högglínu GG. GG var að leika holu með hærra númeri og átti því rétt til leiks, skv. úgefinni bók GSÍ, Golf með skynsemi. Í bókinni segir: Hópur sem lengra er kominn á forgangsrétt. Stundum kemur fyrir að tveir hópar leika nálægt hver öðrum, t.d. þegar teigar liggja saman eða leikmaður hefur slegið yfir á ranga braut. Almenna umferðarreglan er sú að þeir sem lengra eru komnir í leiknum, þ.e. eru að leika braut með hærra númeri, eiga forgangsrétt. Ef þeir þurfa hins vegar að bíða eftir öðrum til þess að geta leikið eða að leita að bolta gildir þessi regla að sjálfsögðu ekki.
Ég hvet alla kylfinga af þessu tilefni til að lesa bókin Golf með skynsemi. Hana er að finna á vef GSÍ, slóðin er hérna:
http://www.golf.is/iw_cache/9379_golf_skynsemi_small.pdf
Fyrir þá sem vilja lesa um allan dóminn er hann að finna á þessari slóð: http://www.haestirettur.is/domar?nr=5693
Höfum það svo efst í huga þegar við leikum golf, að nota skynsemina og leika með varúð. Það er besta tryggingin.
Með golfkveðju,
Margeir Vilhjálmsson