Forsíða | föstudagur 13. febrúar 2009 | 11:08
Hvernig er boltastaðan hjá þér?
Sigurpáll Geir Sveinsson heldur áfram að fjalla um golfsveifluna og grunnatriðin
og tekur m.a. fyrir boltastöðuna í nýjasta pistli sínum.
Athugaðu grunnatriðin framhald
Eins og ég talaði um í síðustu viku er mjög mikilvægt að athuga grunnatriðin þegar sláttur versnar allt í einu. Það fyrsta sem þarf að athuga er miðið. Þegar það er búið er gott að athuga hvort boltastaðan sé rétt. Það er gríðarlega mikilvægt að boltastaðan sé rétt. Oft færist boltastaðan fram eða aftur án þess að maður taki eftir því. Slæmur sláttur getur þess vegna eingöngu verið vegna þess að boltastaðan er ekki rétt.
Boltastaða of aftarlega
Ef boltastaðan færist of mikið til hægri í uppstillingunni (of aftralega) er nánast öruggt að kylfuhausinn er ekki búinn að ná réttri stöðu þegar boltinn er hittur, þ.e.a.s. boltinn er hittur of snemma og þess vegna vísar kylfuhausinn til hægri þegar boltinn er hittur. Boltaflugið í þessu tilfelli yrði oftast beint til hægri og það þyrfti aðra villu í sveiflunni eða gripinu til þess að boltinn myndi enda á réttum stað.
Boltastaða of framarlega
Ef boltastaðan færist hins vegar of mikið til vinstri í uppstillingunni (of framarlega) eru miklar líkur á því að kylfuhausinn sé búinn að ná réttri stöðu og farinn að lokast, þ.e.a.s. vísa til vinstri þegar kylfan hittir kúluna. Í þessu tilfelli færi boltinn nánast alltaf til vinstri og ekki ólíklegt að það yrði snúningur til vinstri líka. Eins og í fyrra tilfellinu, þyrfti aðra villu í sveiflunni eða gripinu til þess að boltinn færi þangað sem hann átti að fara .
Þetta eru kannski voðalega einföld og augljós atriði fyrir suma. Þetta eru samt mjög mikilvæg atriði og kannski eru þau það einföld og augljós fyrir marga, að þau gleymast þegar sláttur fer versnandi. Ég hef margoft horft uppá afrekskylfinga (ég meðtalinn) standa á æfingasvæði pælandi í tækniatriðum þegar villan leynist í GRUNNATRIÐUNUM. Ég skora á alla að byrja á að láta athuga þessi atriði fyrst því þau verða að vera í lagi.
Golfkveðja
Siggi Palli