Kylfukast | miðvikudagur 21. janúar 2009 | 13:44

Vélmenni á golfvellinum


Golf er í stöðugri þróun.  Ekki virðist þó meðalkylfingurinn verða betri eftir því sem búnaðurinn þróast.  Hvernig svo sem á því stendur.  Jólagjöf kylfingsins um síðustu jól, var miðað við það sem ég heyri Bushnell fjarlægðarkíkir.  Algert snilldartæki.  Ég vinn nú að því í frístundum mínum að hanna „bracket“ til að hengja á hausinn á mér, svo ég geti bara sett kíkinn á hausinn á fyrsta teig og rétt slakað honum yfir augað til að mæla.  Allt í nafni tímasparnaðar og aukins leikhraða.  Það skiptir þennan meðalskussa í golfinu kannski litlu máli uppá  skorið að vita hvort það eru 100 eða 120 metrar í stöngina.   Það er bara 9 eða wedge.  Nákvæmni meðalkylfingins er því miður ekki nema svona plús mínus 30 metrar í lengd og svo aftur til hægri eða vinstri í þessum 100 metra höggum.  En þessir kíkjar eru góð viðbót við golfið.  Skemmtileg tæki og ég mæli með því að allir kylfingar eignist einn slíkan.  Þeir sem eru enn tæknivæddari ættu að taka í notkun GPS útgáfuna sem nú er komin á markað.  Mæli sérstaklega með henni fyrir þá sem eru villtir, þeir rata þá líka aftur inn á brautirnar eftir skógarferðirnar, eða bara heim aftur af vellinum.  Í þeim er líka að finna rafrænt skorkort, ekki bara fyrir einn, heldur alla fjóra sem eru í hollinu.  (Sjá umfjöllun Sigga Hlö og video um GPS tæki:  http://golf.blog.is/blog/golf/  )

Þetta aukadót fyrir kylfinginn er samt algert drasl miðað við það sem nú er í boði fyrir vallarstjórann á heimavellinum ykkar.  Nú er nefnilega komið á markað sláttuvélmenni.  Því verður ekki langt að bíða þess að óánægðir kylfingar þurfi að láta reiði sína bitna á tilfinningalausu vélmenni.  Vélmennið er talið mun fremra hinni mennsku ófullkomnun, þannig að sláttulínurnar eru alltaf beinar og fallegar, það mætir alltaf til vinnu og þarf ekki matartíma.
 (Sjá sláttuvélmennið á slóðinni: http://uk.youtube.com/watch?v=5CwFwUBhwOw )
 Ég veit ekki hvort það tekur tillit til þess að leikmenn bíði úti á braut eftir að slá inn á flötina, en hinn mennski sláttumaður tekur s.s. aldrei tillit til leikmannanna heldur.  Holuskiptivélmennið er ekki ennþá komið á markað en unnið er að þróun þess.  Holustaðsetningar verða ávallt fullkomnar og ekki er loku fyrir það skotið að  leikmaðurinn sjálfur geti  fengið nákvæmar holustaðsetningar uppá millimetra frá holuskiptivélmenninu inní GPS mælitækið.  Allt mjög gaman.  En til hvers að vita nákvæma holustaðsetningu ef getan er ennþá uppá +/- 30 metra í hvaða átt sem er.   Þrátt fyrir allt þetta nýja og skemmtilega dót mun hið fornkveðna enn eiga við: „Æfingin skapar meistarann“.