Forsíða | fimmtudagur 8. janúar 2009 | 10:12

Tölfræði


Margeir Vilhjálmsson telur að það sé erfitt að nálgast upplýsingar frá gömlum Íslandsmótum. Hann segir þessar upplýsingar mikilvægar um sögu golfs á Íslandi og þróunar íþróttarinnar, upplýsingar sem verða verðmætari eftir því sem tíminn líður. "Það væri golfíþróttinni til mikils framdráttar að hafa slíkar upplýsingar aðgengilegar." Hér á eftir fer pistill Margeirs:

"Þar sem oft kemur upp í umræðunni hvort að ungir og efnilegir kylfingar í dag séu betri eða lélegri núna en fyrir áratug eða bara í „gamla daga“.  Til að reyna komast að hinu sanna fór ég að leita að upplýsingum um skor í mótum og svona nokkurs konar „tölfræði“ leikmanna. 

Þrátt fyrir að skor leikmanna í öllum Íslandsmótum og stigamótum frá árinu 2001 hafi verið slegin inn á www.golf.is, þá virðist því miður hægara sagt en gert að nálgast þessar upplýsingar.  Hvar maður getur svo nálgast skor úr mótum fyrir þann tíma er enn stærri spurning.  Ég veit þó dæmi þess að góður maður hélt bók um slíkt hjá Golfklúbbi Reykjavíkur í mörg ár.  Skrifaði samviskusamlega inn í bókina öll skor í mótum hjá klúbbnum. Slík dæmi er jafnvel að finna hjá öðrum klúbbum. Ragnar Ólafsson gerði á sínum tíma heiðarlegar tilraunir til að fá þátttakendur í stigamótum og landsliðskylfinga til að skrá tölfræði á þar til gerð blöð.  Alfræðibókin um golf var gefin út fyrir nokkrum árum, en þar eru ekki miklar upplýsingar um tölfræði.

Hver varð t.d. Íslandsmeistari  karla í golfi árið 1970?  Eftir nokkra leit fannst listi inni á www.golf.is  þar sem tekið er saman hverjir hafa orðið Íslandsmeistarar í golfi frá upphafi. Svarið er Þorbjörn Kjærbo. Listinn hefur að vísu ekki verið uppfærður frá árinu 2005, en maður vonar að einhver muni nú að gera það við tækifæri. Á þessum lista kemur ekkert fram um hvað heildarskor Íslandsmeistarans var eða á hvaða velli var leikið. Hver var í öðru sæti? Þriðja? Ekki er að finna neinar upplýsingar um hverjir hafa orðið Íslandsmeistarar í holukeppni eða hvernig úrslit í leikjum hafa verið. Þetta eru mikilvægar upplýsingar um sögu golfs á Íslandi og þróunar íþróttarinnar, upplýsingar sem verða verðmætari eftir því sem tíminn líður. Samantekt af þessu tagi er að finna inni á vef Körfuknattleikssambands Íslands. Þar má sjá hversu mörg stig leikmenn hafa skorað í gegnum tíðina, í hvaða leikjum þeir hafa sett persónuleg met o.s.frv. Það væri golfíþróttinni til mikils framdráttar að hafa slíkar upplýsingar aðgengilegar.

Væri ekki gaman að geta fundið á einum stað hversu mörg högg Björgvin Sigurbergsson hefur slegið í stigamótum í gegnum tíðina. Hann hefur orðið Íslandsmeistari í golfi fjórum sinnum. Notaði hann fleiri högg á þessum fjórum mótum en þegar Magnús Guðmundsson varð Íslandsmeistari 4 ár í röð 1963-66. Þess má geta að Magnús varð einnig Íslandsmeistari 1958. Á hvaða velli var leikið? Hversu margar holur? Var kannski leikin holukeppni? Hver veit."

Með golfkveðju,
Margeir Vilhjálmsson.

Hér má sjá fleiri greinar á Kylfukasti Margeirs.

Mynd/Kylfingur.is: Frá Kaupþingsmóti; Sigurþór Jónsson, Björgvin Sigurbergsson og Pétur Óskar Sigurðsson ræða málin. Væri ekki gaman að geta fundið á einum stað hversu mörg högg þeir hafa slegið í stigamótum í gegnum tíðina.