Forsíða | mánudagur 29. desember 2008 | 16:58
Samanburður í árslok
Í tilefni þess að árið er að líða tók Margeir Vilhjálmsson saman tölur úr ársreikningum fjögurra stærstu klúbba landsins. Ekki er auðvelt að gera samanburð á rekstrartölum klúbbanna, þar sem þeir setja reikningana fram á mismunandi máta. Með smá tilfæringum og skoðunum var þó hægt að setja upp ágætis mynd af tölunum, s.s. launakostnaði, rekstrarkostnaði við golfvelli (án launa), kostnaði við afreksstarf ofl.
"Það sem stendur uppúr er að helmingur félagsmanna innan GSÍ er í þessum fjórum klúbbum. Samtals reka þessir klúbbar sex 18 holu velli og fimm 9 holu velli, félagsmenn þeirra greiða tæplega 500 milljónir í félagsgjöld á ári. Gera má ráð fyrir að heildartekjur golfklúbba á Íslandi séu ríflega einn milljarður króna. Áhugavert væri ef Golfsamband Íslands myndi safna saman ársreikningum klúbbanna og halda einhverskonar bókhald yfir heildarveltu golfklúbbanna, fjölda starfa sem klúbbarnir veita á landsvísu o.s.frv, en fjöldi starfsmanna þessara fjögurra klúbba yfir hásumarið er um 200, meðan heilsársstöður eru 32.
Keilir rekur Hraunkot, GR leigir út rekstur Bása til ProGolf. Fyrir leiguna til ProGolf fær GR nánast jafn miklar leigutekjur og Keilir fær í heildartekjur úr rekstri sínum á Hraunkoti. Afkoma Hraunkots er tæpar 4 mkr, meðan Básar skila um 11 mkr.
Rekstur Keilis skilar mestum peningum, en fjármagnskostnaður þeirra er tvöfaldur á við hina klúbbanna. Munar þar mestu um eitt erlent lán hjá Landsbankanum, sem hækkaði um 34 mkr. á rekstrarárinu. Keilismenn skera sig einnig úr að því leyti að félagsgjöld klúbbsins eru 51% af heildartekjum, meðan að félagsgjöldin eru yfir 61% tekna hjá öllum hinum.
Fullt félagsgjald hjá GR og Keili er 68.000 og er meðaltals félagsgjald þeirra mjög svipað eða rétt um 62.000 kr., en hjá GKG er fullt gjald 69.000 kr, en meðaltals félagsgjaldið aðeins 55.000 kr og hjá Oddi er það 76.000, en meðaltals félagsgjald um 65.000 kr. Þetta ætti að benda til þess að samsetning félagamanna í GR og GK sé nokkuð sambærileg. Hjá GKG og GO eru aftur á móti færri félagsmenn hlutfallslega sem greiða fullt árgjald.
Klúbbanna bíða afborganir á nýju ári sem nema 66-88 mkr. og ljóst m.v. núverandi stöðu að allir þurfa þeir að endurfjármagna þau skammtímalán.
Það sem vakti svo sérstaka athygli að lokum er sá kostnaður sem fer í grasfræ, áburð, sand, túnþökur og ýmislegt efni á golfvellina. Á Hvaleyrarvöll var eytt 1,5 mkr í slík efni, Vífilstaðavöll 3,2 mkr, Urriðavöll 5,5 mkr., Grafarholt 4,9 mkr, Korpúlfsstaðavöll 2,2 mkr og Garðavöll 650 þús.
Ég vona að þessi yfirferð verði einhverjum hvatning til að lesa ársreikninga klúbbanna og ársskýrslur þeirra. GKG og GO gefa út mjög veglegar ársskýrslur með upplýsingum og myndum frá starfi sumarsins. Skýrslur klúbbanna er fróðleg lesning, sem og ársreikningarnir sem hægt er að nálgast á heimasíðum klúbbanna."
Bestu óskir um gleðilegt nýtt golfár.
Margeir Vilhjálmsson
Hér fyrir neðan má sjá þessar tölur sem rætt er um úr ársreikningum fjögurra klúbba.

Mynd: Frá Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði. Rekstur Keilis skilar mestum peningum, en fjármagnskostnaður þeirra er tvöfaldur á við hina klúbbanna. Keilismenn skera sig einnig úr að því leyti að félagsgjöld klúbbsins eru 51% af heildartekjum, meðan að félagsgjöldin eru yfir 61% tekna hjá öllum hinum.