Forsíða | laugardagur 27. desember 2008 | 11:42
Kylfurnar í pokanum
Margeir Vilhjálmsson segir í nýjasta pistli sínum að það eitt að létta pokann gæti bætt skorið. "Veljið þær kylfur sem þið notið mest t.d. driver, blending, fimmu, sjöu, níu, tvö fleygjárn og pútter. Prófið þetta á nýju ári," segir hann. Hér á eftir fer pistill Margeirs:
"Ég hef oft velt því fyrir mér af hverju kylfurnar í pokanum eru fjórtán. Röksemdirnar eru svipuðum nótum og þær sem er að finna um af hverju holurnar á golfvellinum eru átján. En þetta er allavega staðlað samkvæmt reglunum, að kylfingur megi að hámarki nota fjórtán golfkylfur á hringnum. Fyrir kylfu sem skemmist við „eðlilegan leik“ má setja inn „varamann“, en ekki ef kylfan er t.d. brotin í reiðikasti. Ég hef látið þær nokkrar kenna á því í gegnum tíðina og því oft komið með færri heilar kylfur í hús en lagt var af stað með.
Golfsettið með öllu draslinu sem fylgir, s.s. boltum, aukafatnaði og hvaðeina dóti sem þar er að finna vigtar á bilinu 14-20 kg. Þetta er svo burðast með eina 8-10 kílómetra á einum golfhring. Ef notuð er kerra þá eiga kylfingar það til að taka ennþá meira með sér. Eins og að 5-10 aukakíló á skrokknum séu ekki nóg. Það er ekki furða að það sé erfitt að halda haus á síðustu holunum.
Ég legg það til að kylfingar taki á þessum málum á nýju ári. Aukakílóin hverfa af skrokknum með góðu mataræði og hreyfingu í ræktinni fram að golftímabilinu. Svo má aðeins grandskoða það sem fer í golfpokann. Er alveg nauðsynlegt að taka með sér dúsin af boltum? Á mjög slæmum hring týna menn kannski 3-4 boltum. Því ætti að vera nóg í 99% tilfella að taka með sér að hámarki sex bolta. Nokkur tí, Bushnellinn (fyrir þá sem hann eiga), aukahanska og miða svo aukafatnaðinn m.v. veðráttu, þótt það geti reynst erfitt á Íslandi. Svo eru það kylfurnar. Reglurnar segja að þær megi að hámarki vera fjórtán. Farið í gegnum það í huganum hversu oft þið notið hverja kylfu. Það er nokkuð víst að það skiptir kylfinga með yfir 2-3 í forgjöf tiltölulega litlu máli hvort þeir eru með 8 eða 14 kylfur í pokanum einfaldlega útaf því að margir vita ekki einu sinni hversu langt þeir slá nákvæmlega með hverri kylfu, aðrir hafa ekki getu til að ráða við kylfur eins 3 járn, 4 járn eða þá að marktækur munur verði á högglengd með 5-6 eða 7 járni. Það eitt að létta pokann bætir skorið meira heldur en að kylfurnar sex myndu gera. Veljið þær kylfur sem þið notið mest t.d. driver, blending, fimmu, sjöu, níu, tvö fleygjárn og pútter. Prófið þetta á nýju ári. Það má vera að hvert kíló sem er skilið eftir geti bætt skorið um 1 högg."
Kærar jóla- og nýárskveðjur,
Margeir Vilhjálmsson
Sjá fleiri greinar á Kylfukasti Margeirs.