Forsíða | mánudagur 15. desember 2008 | 12:09

Jólagjöf golfarans


"Gefum golfaranum eitthvað sem hann þarf virkilega á að halda um þessi jól.  Gefum golfkennslu.  Þótt það komi sumum á óvart, þá vinna golfkennarar líka á veturna," þetta segir Margeir Vilhjálmsson í nýjasta pistli sínum á Kylfukasti. Gefur Margeiri orðið.

"Skammdegið er í hámarki og þjóðin orðin uppteknari að leita að jólagjöfum heldur en að mótmæla á Austurvelli.  Eftir góðæri undanfarinna ára er mesta vandamálið að finna gjöf handa þeim sem allt á.  Að finna jólagjöf fyrir golfara ætti að vera minnsta mál í heimi.  Honum á að gefa tíma í golfkennslu.  Tíma sem þarf að sækja á tímabilinu janúar til apríl.  Ein helsta ástæðan er sú að fjölmargir kylfingar fara aldrei í golfkennslu.  Aðrir fara alltof sjaldan.

Niðurstaðan verður kunnáttuleysi og þegar kylfingar mæta á golfvöllinn á vorin að eigin mati í toppformi reynast brautirnar alltof þröngar.  Kylfingnum finnst það óhæfa að einungis séu 70 metra breið lendingarsvæði fyrir teighöggin og vallarstjórar landsins fá að heyra að þeir séu í besta falli asnar og hönnun vallanna hafi verið framkvæmd af fávitum sem ekkert vita um íslenskar aðstæður.  Það sé skandall að allt röff innnan vallarmarka sé ekki slegið í 30 mm svo kylfingurinn sem rís úr dvala í maí geti fundið boltann sinn eftir bananaslæs  70 metra áfram og 150 hægra megin við áætlaða leikstefnu.  Þetta veldur svo öðrum kylfingum armæðu vegna leiktafar og geðvonskukasta þess kylfings sem leitar boltans.  Það er ekkert gaman í golfi þegar 18 holurnar taka 5 tíma og þrír þeirra fara í leit.  Tala nú ekki um kostnaðinn þegar pro v1 boltinn er kominn í 1.000 kr.

Flestir golfarar eiga það sameiginlegt að þeim er illa við að líta í eigin barm.  Fyrst er það léleg hönnun vallarins, svo lati vallarstjórinn, svo er kylfan endurnýjuð.  Þetta hegðunarmynstur er endurtekið árlega.  Það er aðeins ein lausn á slíku vandamáli.  Fara í golfkennslu.  Mæta svo oftar í Bása og/eða Hraunkot yfir vetrartímann.  Hafa það fyrir reglu að slá ekki færri en 50 bolta í viku frá jólum og fram í apríl.  Það er afgreitt með einu Platínukorti sem kostar um 9.000 krónur (20 x 50 boltar + 200 fríboltar).  Einkakennslutími til viðbótar kostar á bilinu 4-8.000 krónur.

Ef þú gefur margar jólagjafir til golfara sem þér þykir vænt um þá er hægt að kaupa hópkennslu fyrir 5 manns í 5 tíma fyrir um 30-35.000 krónur.  Það er jafngildi tveggja gallabuxna í tískuvöruverslunum í Kringlunni.
Gefum golfaranum eitthvað sem hann þarf virkilega á að halda um þessi jól.  Gefum golfkennslu.  Þótt það komi sumum á óvart, þá vinna golfkennarar líka á veturna.  Æfingin skapar meistarann."

Með golfkveðju,
Margeir Vilhjálmsson.

Sjá fleiri greinar á kylfukasti Margeirs.

Mynd: Ragnhildur Sigurðardóttir er hér við kennslu í Hveragerði sl. vor.