Forsíða | mánudagur 8. desember 2008 | 11:00
Landsliðseinvaldur í golfi
"Lagt er til að GSÍ ráði ekki landsliðsþjálfara. Það er bara bull. GSÍ á að ráða landsliðseinvald. Hans starf mun felast í því að velja landslið Íslands í golfi í öllum flokkum." Þetta segir Margeir Vilhjálmsson m.a. í nýjasta pistli sínum þar sem hann veltir fyrir sér landsliðsmálum.
"Nú er tíðrætt um hvern eigi að velja sem nýjan landsliðsþjálfara í golfi. Mörgum þykir ljóst að vonlaust sé að velja Íslending til starfans. Enginn heimamaður er nógu góður til að þjálfa landsliðið okkar. Þeir sömu halda því gjarnan fram að það verði að fá “stórt” nafn úr golfheiminum til sjá um liðið. Það sé það eina sem sé vænlegt til árangurs. Viðkomandi þarf að hafa yfirburðaþekkingu á golfi, tækniæfingum, leikskipulagi, vallahönnun, flataslætti, vera góður íþróttafræðingur, sálfræðingur og náttúrlega hér á landi veðurfræðingur. Svo er keppst um að telja fram Íslendinga og útlendinga sem best passa í stöðuna. Þessir aðilar eru svo bornir saman við Staffan Johansson og John Garner. Það gleymist í umræðunni að á þeirra starfi var einn lykilmunur. Staffan hefur fengið að vera einráður um öll mál sem viðkoma afreksgolfi hjá GSÍ undanfarin 8 ár. Reglugerðum GSÍ var breytt, svo þær hentuðu honum betur. Þegar John Garner þjálfaði íslenska landsliðið starfaði hann með landsliðseinvaldi, Jóhanni Benediktssyni, mjög góðum og vönduðum manni úr Golfklúbbi Suðurnesja. Jóhann sá um að velja landsliðið, Garner þjálfaði. Á þessum tíma var hægt að telja menntaða golfkennara á landinu á fingrum annarar handar. Eða kannski á einni og hálfri hönd. Nú er öldin önnur.
Lagt er til að GSÍ ráði ekki landsliðsþjálfara. Það er bara bull. GSÍ á að ráða landsliðseinvald. Hans starf mun felast í því að velja landslið Íslands í golfi í öllum flokkum. Fyrir hvert tímabil verður búið að tilkynna eftir hvaða kerfi verður valið í landsliðið, hvaða verkefni eru framundan og hversu mikið vægi hvert mót hefur í valinu. Það þarf engan eldflaugaverkfræðing í þetta starf heldur mann sem getur haldið vel utanum gegnsætt kerfi, skapað góðan anda í kringum landsliðið og hvatt kylfinga til dáða. Hann mun halda utan um fjárhag landsliðsins og fá færa sérfræðinga til að halda námskeið. Þau námskeið geta verið hérlendis eða erlendis. Þátttökurétt hafa kylfingar sem hafa unnið til með árangri sínum á vellinum og þjálfarar þeirra. Að öðru leyti verða kylfingar þjálfaðir af golfkennurum klúbbanna eða hverjum þeim þjálfara sem þeir sjálfir treysta best og vilja vinna með. Mikilvægt er að landsliðeinvaldurinn sé ekki golfkennaramenntaður og þ.a.l. ekki að skipta sér af tæknilegri þjálfun leikmannanna.
Um landsliðssæti á að keppa. Eins um þátttökurétt í mótum erlendis. Þeir sem fá að ganga að sæti sem vísu munu aldrei leggja sig fram í keppni til jafns við þá sem þurfa að skila árangri til að hljóta sæti. Því er tekinn burt sá nauðsynlegi grunnur að kunna að keppa."
Með kveðju,
Margeir Vilhjálmsson.
Sjá fleiri greinar frá Margeiri á kylfukast.
Mynd: Staffan Johannson og Ragnar Ólafsson eru hér með íslenska karlalandsliðinu á heimsmeistaramótinu í Ástralíu.