Forsíða | mánudagur 1. desember 2008 | 09:53
Stigamótin 2009
"Ég veit ekki um neinn völl hér á landi sem er betur til þess gerður að skapa afrekskylfinga en Þorlákshafnarvöllurinn. Ég spái því að næsti Íslendingur sem kemst á evrópsku mótaröðina verði sá sem leikur þann völl undir pari í móti af öftustu teigum. GSÍ ætti að nota hann meira," segir Margeir Vilhjálmsson í pistli sínum að þessu sinni. Þar fer hann yfir drögin af mótaskrá GSÍ 2009 og hefur ýmislegt við drögin að athuga.
"Formannafundur Golfsambandsins var haldinn nú fyrir skömmu og í kjölfarið voru kynnt drög (eða ég ælta að vona að það séu drög) að mótaskrá GSÍ fyrir árið 2009. Mótaskráin er veigamikil eins og undanfarin ár og á skránni er að finna 6 stigamót fullorðinna, 6 stigamót unglinga, 4 sveitakeppnir karla, 1 sveitakeppni kvenna, 2 sveitakeppnir unglinga og 4 öldungamót, Íslandsmót 35+ og svo lokamót allra flokka, alls 25 mót á vegum GSÍ. Af þessum mótum eru 23 sem fara fram á 18 holu golfvöllum, en leikið er á 9 holu völlum í Sveitakeppninni í 3. og 4. deild.
Þau 23 mót sem fram fara á 18 holu völlum taka samtals 58 daga, á 106 daga tímabili frá 23. maí til 6. september. 45 þessara daga eru helgidagar (laugardagur og sunnudagur), en 32 slíka er að finna á 106 daga tímabilinu. Því má segja að GSÍ sé með einn 18 holu völl upptekinn allt sumarið og annan völl til viðbótar þriðju hverja helgi á tímabilinu. Þetta er 10% af þeim tíma sem í boði er helgar á 18 holu golfvöllum á Íslandi. Sitt má sýnast hverjum hvort þetta er mikið eða lítið.
Þrátt fyrir að mótin séu 23 og 18 holu vellirnir 14 talsins, þá fá vinir mínir í Þorlákshöfn ekkert mót að þessu sinni. Það finnst mér furðulegt. Frábær völlur og ég veit ekki betur en þau mót sem þar hafa farið fram hafi verið framkvæmd með miklum ágætum. Á meðan eru haldin 3 mót hjá GKG og 3 hjá GO, klúbbum sem ég hélt að ættu nóg með að sinna sínum félagsmönnum. En hvað veit ég. Munurinn er sá að fyrir klúbba utan höfuðborgarsvæðisins eru GSÍ mót ágætis tekjulind en þau eru frekar umferðarhamlandi á höfuðborgarsvæðinu hjá þétt setnum klúbbum. Ég veit ekki um neinn völl hér á landi sem er betur til þess gerður að skapa afrekskylfinga en Þorlákshafnarvöllurinn. Ég spái því að næsti Íslendingur sem kemst á evrópsku mótaröðina verði sá sem leikur þann völl undir pari í móti af öftustu teigum. GSÍ ætti að nota hann meira.
Það er alltaf eitthvað við niðurröðun í mótaskránni sem vekur furðu mína. Fyrir næsta ár er það fyrsta að hafa unglingamót í maí, í miðjum prófum. Hélt að þetta hefði verið afnumið og sett þannig að fyrsta unglingamótið væri alltaf í júní. Ég er bara þeirrar skoðunar að hjá unglingum eigi skólinn að koma fyrst, íþróttirnar næst. Nú er líka fyrsta stigamót fullorðinna í Vestmannaeyjum. Ég hélt líka að það hefði verið horfið frá því. Völlurinn er frábær, það vantar ekki en einhvern veginn hentar betur að hafa mótin í Eyjum nr. 2 eða 3 í röðinni. Þegar allir eru komnir í fullan gír. Toppurinn á mótaskránni fyrir næsta ár er fyrsta helgin í júlí. Íslandsmót fullorðinna í holukeppni fer fram á Kiðjabergsvelli laugardag-mánudag. Líst vel á að ljúka þessu móti á mánudegi. Íslandsmót unglinga í holukeppni fer fram í Öndverðarnesi föstudag til sunnudag. Þá kemur gallinn á gjöf Njarðar. Fyrsta helgin í júlí er mesta ferðamannahelgi ársins. Sumarbústaðabyggðir við og í nágrenni við þessa tvo velli verða þétt setnar. Og ég spyr – hvar á fólkið í sem er í sumarbústöðunum að spila golf? Að mínu mati er þetta mál sem hefur engan veginn verið hugsað. Ég bið þá sem hafa með málið að gera að taka mark á þessum viðvörunarorðum. Verði þetta svona fá menn það í hausinn.
Golfvellirnir í Kiðjabergi og Öndverðarnesi hafa öðruvísi umferð en flestir klúbbvellir. Mesta umferð á þessum völlum er frá seinni part fimmtudags og út sunnudag. Mánudaga og fram eftir fimmtudegi er annars minni umferð. Því ætti að skoða að láta Íslandsmót unglinga í holukeppni fara fram á þriðjudag – fimmtudag á Öndverðarnesi. Hafa mánudag sem æfingadag. Íslandsmót fullorðinna í holukeppni gæti farið fram á sunnudegi til þriðjudags, því þeir sem þar komast áfram eru hvort eð er hálf-atvinnumenn. GSÍ þurfa ekki öll að fara fram um helgar. Sérstaklega ekki unglingamótin. Það myndi gera klúbbstarfi unglinga gott að fara með þjálfurum og liðsstjórum út á land á virkum dögum og keppa. Svo væri líka ágætt að leyfa unglingunum að kynnast mörgum af þeim góðu 9 holu völlum sem er að finna víða um landið.
Vonandi nota menn tímann og raða uppá nýtt"
Með golfkveðju,
Margeir Vilhjálmsson
Mynd: Frá Þorláksvelli.