Forsíða | sunnudagur 23. nóvember 2008 | 15:01
Golfvöllur ársins
Margeir Vilhjálmsson pistlahöfundur hér á Kylfingur.is veltir því upp í grein sinni hvort ekki væri rétt að gefa golfvöllum á Íslandi einkunn fyrir gæði og velja "Golfvöll ársins". Kylfingur.is mun fyrir næsta golftímabil leita samstarfs við Golfsambandið, PGA, SÍGÍ og alla golfklúbba landsins um að taka þátt í vali á golfvelli ársins.
"Hvaða golfvöllur er besti golfvöllur landsins? Sitt sýnist hverjum. Slíkt mat kemur alltaf til með að vera huglægt. Kostir og gallar eru taldir fram og misjafnt er hvernig komist er að niðurstöðu. Vellir smærri klúbba gleymast í umræðunni en fjölda glæsilegra 9 holu golfvalla er að finna hér á landi. Ræður viðhald vallarins meiru en hönnun hans um gæði eða eru það flatirnar sem ráða þessu öllu. Góðar flatir jafnt og góður völlur. Tala nú ekki um veðrið. Það er enginn völlur góður í rigningu. Já eða skorið. Skorar maður illa á góðum velli? Varla.
Gæðamat miðast oft við árstíma en alveg er víst að hönnun eða lega vallarins er ekkert öðruvísi í maí en í júlí. „Völlurinn er frábær - miðað við árstíma!“ Halló. Annað hvort er völlurinn góður, eða ekki.
Keppni er skemmtileg og því orðið nauðsynlegt að koma á koppinn því sæmdarheiti „Golfvöllur ársins“. Verðlauna besta 9 holu völlinn og besta 18 holu völlinn. Vitanlega ætti vallarstjóri golfvallar ársins að vera kjörinn „Vallarstjóri ársins“ því ekkert betra mat er til á vallarstjóra en ástand vallarins sem hann stýrir.
Kylfingur.is mun fyrir næsta golftímabil leita samstarfs við Golfsambandið, PGA, SÍGÍ og alla golfklúbba landsins um að taka þátt í vali á golfvelli ársins. Einnig verður leitað samstarfs við áhugasama kylfinga í hlutverk dómara. Palli Ket hefur eytt óteljandi dýrmætum útsendingarmínútum á Sýn (nú Stöð 2 Sport) í að sannfæra menn um að Leiran sé langbest. Því væri grunnreglan sú að enginn fengi að dæma sinn eigin heimavöll. Kylfingar fengju að leika velli án endurgjalds eða með verulegum afslætti, gegn því að gefa vellinum einkunn að leik loknum. Skemmtilegt."
Með golfkveðju,
Margeir Vilhjálmsson.
Mynd/Kylfingur.is: Kiðjabergsvöllur gæti alveg komið til greina sem Golfvöllur ársins eins og hver hannar.