Forsíða | fimmtudagur 20. nóvember 2008 | 09:03
Aurapúkinn
Margeir Vilhjálmsson spáir aðeins í félagsgjöld klúbba í pistli sínum að þessu sinni. Hann segir að kylfingar í Vestmannaeyjum þurfi aðeins að spila 8,3 hringi til að dekka félagsgjaldið hjá GV, en hjá Keili í Hafnarfirði þurfa félagsmenn að spila 14,33 hringi til að ná upp í félagsgjaldið hjá GK. Það margborgar sig fyrir aurapúkann að vera í klúbbnum ef hann býr í Eyjum, en gæti þurft að hugsa sig um ef hann býr í Hafnarfirði.
Það er ekki víst að allir viti að af hverjum félagsmanni sem er 16 ára og eldri í golfklúbbi eru greiddar 3.500 kr. til Golfsambands Íslands. Þessi upphæð er aðeins greidd einu sinni þannig ef kylfingur er í tveimur klúbbum þá er það aðeins aðalklúbburinn hans (sá klúbbur sem heldur utan um forgjöfina) sem greiðir gjaldið til GSÍ. Réttara væri í raun að taka þetta gjald út fyrir sviga ef svo má segja. Félagsgjald í golfklúbbi væri þá t.d. 50.000 kr. + 3.500 kr. skattur til GSÍ. Ef kylfingur er í tveimur klúbbum eða fleiri, þá ætti hann með réttu að fá 3.500 króna afslátt af félagsgjaldinu í “aukaklúbbunum”, því aukaklúbbur þarf ekki að standa skil á skattinum til GSÍ.
Hæsta vallargjald landsins á síðastliðnu tímabili var að finna hjá GO kr. 7.400, hjá GKG var það 7.000 krónur. Athyglisvert er að skoða hversu marga hringi er hægt að leika á völlum klúbba til að ná upp í félagsgjaldið. Ef notað er hæsta félagsgjald og hæsta gefið vallargjald og tillit tekið til gjalda sem greidd eru til Golfsambandsins (3.500 kr. af hverjum félagsmanni). Fæsta hringi kemst kylfingurinn hjá Golfklúbbi Vestmanneyja (GV) en einungis er hægt að leika 8,30 hringi (félagsgjald 45.000 kr., vallargjald 5.000 kr.) á vellinum til að fylla uppí félagsgjaldið. Flesta hringi er hægt að leika hjá Golfklúbbnum Keili 14,33 (félagsgjald 68.000 kr, vallargjald 4.500 kr.). Því margborgar sig fyrir aurapúkann að vera í klúbbnum ef hann býr í Vestmannaeyjum, en hann gæti kannski þurft að hugsa sig um ef hann býr í Hafnarfirðinum. Þar er ódýrasta vallargjald landsins miðað við félagsgjöld.
Það hefur verið lenska að hækka árgjöld klúbbanna um svona sem nemur rétt rúmlega verðbólgunni. Golfklúbburinn Oddur (GO) hefur boðið uppá hæstu árgjöld landsins síðastliðin tvö ár. Litlar 76.000 krónur nú í ár. Lægsta félagsgjald í klúbbi sem á 18 holu golfvöll er á Flúðum, en þar var félagsgjaldið 30.000 krónur. Raunhækkun á félagsgjaldi golfklúbba frá árinu 1995 er á bilinu 35-40%.
Verðum við ekki að kalla það réttlætanlega hækkun miðað við framfarir í golfvallaviðhaldi og bættri aðstöðu. Svo ekki sé talað um auknar vinsældir íþróttarinnar. Eða hvað?
Það tekur félagsmann í GV aðeins 8,3 hringi að að dekka félagsgjaldið á meðan það tekur Keilismenn 14,33 hringi að dekka sitt félagsgjald.