Á vellinum með Röggu | miðvikudagur 10. ágúst 2005 | 15:49
„Æfingahringur á æfingasvæðinu“
Þig langar að spila 18 holur, en hefur ekki þær 4- 5 klst sem þig vantar, eða enginn teigtími er laus. Hvað gera Danir þá?
Það er hægt að sleppa golfi! eða... fara á æfingasvæði þar sem hægt er að vippa og pútta, og... SPILA 18 HOLUR Á ÆFINGASVÆÐINU!
Já það er hægt að spila 18 holur á æfingasvæðinu. Svona ferðu að því:
Byrjaðu á því að verða þér úti um skorkort af vellinum sem þú ætlar að spila(best er ef það er völlur sem þú þekkir ágætlega). Að sjálfsögðu teygir þú og hitar upp, vippar og púttar nokkrum sinnum. Síðan færðu þér fötu fulla af boltum, Sláðu nokkur æfingahögg og undirbúðu þig undir hringinn.
Gefum okkur að fyrsta holan sé 320 m par 4. Þú tekur upp driverinn eða 3-tréð og kemur þér í gírinn. Þú metur sjálfur hvernig til tókst og út frá því ákveður þú hvaða kylfu þú tekur næst.
Eftir annað höggið verðurðu að meta hvort þú hittir flötina eða ekki og út frá þeim rökum skráirðu hjá þér hvernig högg þarf að framkvæma næst, annaðhvort vipp, pútt eða högg úr glompu. Fjarlægð frá holu verður líka að taka inn í myndina(hvort sem um vipp, pitch eða pútt er að ræða) og skrá niður. Þessar upplýsingar á allar að vera hægt að skrá á skorkortið fyrir aftan númer hverrar holu.
Næsta hola er spiluð eftir nákvæmlega sama kerfi, þar sem hvert högg er metið með tilliti til kylfuvals í næsta höggi, og loks fjarlægð frá holu í vippum, pitchum og púttum alltaf skráð skilmerkilega á skorkortið.
Spilaðu 9 eða 18 holur á þennan hátt á æfingasvæðinu og njóttu þess í botn. Vertu heiðarlegur við sjálfan þig og lofaðu ímyndunaraflinu að ráða ferðinni. Spilaðu eins og þetta væri raunverulegur hringur.
Að því búnu liggur leiðin að æfingaflötinni, þar er skorkortið tekið upp og holurnar kláraðar hver af annarri. Pitchin og vippin eru framkvæmd á hverri holu og dæmið klárað með því að rúlla púttunum í. Mundu að staðsetja boltann þinn jafnlangt frá holunni í hvert sinn og þú hafðir ákveðið fyrirfram og við svipaðar aðstæður og þú hafðir séð fyrir þér.
Að lokum er skorið á hverri holu fyrir sig skráð og allt lagt saman.
Þegar síðasta púttið dettur, hefur þú lokið heilum hring á æfingasvæðinu, sem aðeins tók u.þ.b. klukkustund. Til hamingju! og þú veist nákvæmlega hvort þú varst að spila vel eða illa og getur með góðri samvisku gefið upp raunhæft skor, hafir þú verið samkvæmur sjálfum þér.
Æfingasvæðið í nýju ljósi! Fata full af boltum mun öðlast líf. Frábær æfing og skemmtun, sem er mun ódýrari en það að fara á völlinn, fyrir þá sem ekki eru meðlimir í klúbbnum. Ég skora á þig að prófa!
- Með kveðju, Ragga.