Forsíða | mánudagur 6. febrúar 2012 | 14:29
Það þurfa allir að læra reglurnar
Gunnar Þór Sigurjónsson skrifar:
Það er almenn þekking flest allra kylfinga að ef boltinn þinn getur stofnað einhverjum öðrum á golfvellinum í hættu þá skaltu kalla eins hátt og þarf „fore“. Þetta er grundarvallaratriði sem á að vera kennt öllum kylfingum áður en þeim er hleypt út á völl. Því það hlítur að vera grundavallaratriði fyrir klúbbana hér á landi að kylfingum sé ekki stefnt í óþarfa hættu á meðan þeir dvelja á vellinum. Hins vegar virðist það vefjast fyrir mönnum að kalla „fore“ ef þeir eru ekki vissir um stefnu boltans, en reglan er þannig að þú skalt kalla „fore“ ef það er minnsti möguleiki að boltinn þinn fari í annan spilara hvort sem hann sé með þér í holli eða 100 metra til hægri.
Þið hljótið að kannast við það að ef einhver kallar „fore“ og boltinn hans lendir ekki nálægt þér. Þá ertu bara sáttur með að hann hafi hugsað úti það að láta vita. Hins vegar kemur annað hljóð í strokkinn ef boltinn lendir nálægt þér og enginn kallar neitt, því þá á augabragði ertu orðinn pirraður og það breytir þig engu hvort hann hafi haldið að boltinn væri ekki svona nálægt þér. Þar af leiðandi er þetta býsna mikilvægt fyrir alla byrjendur að vita þetta bæði öryggisins vegna og einnig vegna þess að það er ekkert skemmtilegt að fá yfir sig skítköstin þegar þú ert að taka þín fyrstu skref í golfi, bara af því þú vissir ekki betur.
Það ætti líka að vera ofarlega í forgangsröð klúbbana að sjá til þess að hver einasti kylfingur sem slær á fyrsta teig sé með þekkingu um það hvernig á að umgangast völlinn. Það eru ekki flóknar reglur og allir ættu að vita þær hundrað prósent.
- Ekki fara með kerrur á teiga og flatir
- Raka sandgryfjur
- Laga torfuför
- Laga boltaför á flötum
- Ekki hlaupa, styðja sig við kylfu eða ganga óvarlega um á meðan þú ert á flötinni.
- Alls ekki henda rusli á völlinn, sama hvort það sé lifrænt eða ekki (bananahýði er 3-5 vikur að verða að mold)
Auk þess er heiðursmannaregla í golfi um að vera kurteis og hljóðlátur.
Þetta er eitthvað sem allir eiga að vita hvort sem þeir eru að slá sín fyrstu högg eða keppa í Íslandsmóti. Það hlýtur að segja sig sjálft að engin á að fá að stunda leikinn ef hann er annað hvort að stofna öðrum í hættu eða að skemma leikvanginn. Þess vegna er það mitt álit að menn eigi að vera skyldugir að fara á reglunámskeið til að fá að ganga í klúbba og eftirlitmenn golfvallanna eigi að fræða alla þá sem koma að spila og eru ekki skráðir í klúbb. Það tekur ekki langan tíma að segja frá þessu í stuttu máli og auk þess ætti það að vera staðalbúnaður allra golfklúbba landsins að hafa leiðbeiningarbækling fyrir nýliða um hvernig ganga skal um völlinn.
Auðvitað ræður hver og einn hvort hann fer eftir golfreglunum sjálfum, telur rétt, færir boltann til og svoleiðis, svo lengi sem hann er ekki að keppa í móti. Það truflar engan hvort þú spilar eftir ströngustu reglum eða ekki á meðan þú leikur þér, svo lengi sem þú ert ekki að tefja og skaða hvorki aðra né völlinn. Þetta er heiðursmanna íþrótt og við skulum halda heiðrinum uppi með því að ganga vel um vellina okkar sem við höfum hér heima. Og auðvitað sem kylfingur átt þú að setja út á það ef þú sérð einhvern gera eitthvað sem bitnar á vellinum, hvort sem það sé að henda rusli eða berja kylfunum ofan í viðkvæmt grasið. Mundu bara að gera það kurteisislega því æsingur hjálpar engum.