Forsíða | föstudagur 30. júlí 2010 | 19:00

Monty skipar aðstoðarmenn


Colin Montgomerie staðfesti í dag skipun þeirra Thomas Björn, Darren Clarke og Paul McGinley í störf aðstoðarfyrirliða Ryderliðs Evrópu.

Monty hafði áður gefið til kynna að Björn og McGinley yrðu ráðnir en ákvað að gefa þeim fyrst tækifæri á að vinna sér sæti í liðinu.

Allir þrír eru þaulreyndir Ryder-kappar og var Monty hæstánægður með að fá þá til liðs við sig. "Þeir hafa allir áður verið hluti af sigursælum Ryder-liðum og þekkja vel þá sem munu skipa liðið í október. Ég er hæstánægður með að hafa þá mér við hlið og er viss um að þeir verða ómetanlegir bæði fyrir mig og allt liðið þegar við freistum þess að endurheimta Ryder-bikarinn."

Mynd úr safni Golfsupport.nl - Thomas Björn verður einn af aðstoðarfyrirliðum Montys.