Forsíða | föstudagur 30. júlí 2010 | 12:17
Piltalandsliðið í 2. sæti í Eistlandi - Rúnar á einu yfir pari
Íslenska piltalandsliðið er í 2. sæti eftir fyrsta keppnisdag af þremur á Evrópumóti liða í Eistlandi. Svíar eru í sérflokki en Ísland er í 2. sæti af níu liðum á 384 höggum, 9 höggum betri en Pólland sem er í 3. sæti. Svíar eru 23 höggum betri en Íslendingar.
Leikið er á Estonian golfvellinum en þar hefur m.a. verið leikið á Evrópumótaröðinni og þá fór fram þar undankeppni HM mót liða í fyrra þar sem Sigurpáll Geir Sveinsson og Björgvin Sigurbergsson voru meðal þátttakenda.
Bestum árangri Íslendinga náði Rúnar Arnórsson en hann lék á einu höggi undir pari, 71 höggi og var með næst besta skor allra. Páll Theódórsson var næstur á 4 yfir pari og Guðmundur Ágúst Kristjánsson var fimm yfir. Leikur er hafinn á öðrum keppnisdegi og Rúnar hefur lokið leik á 8 yfir pari, 80 höggum og Magnús Björn er á 81 höggi eftir að hafa verið á 86 í gær. Guðmundur Ágúst stendur upp úr í íslenska liðinu í dag og er þegar þetta er skrifað á einu höggi undir pari eftir tólf holur.
Skor á fyrsta degi:
Rúnar Arnórsson 72
Magnús Björn Sigurðsson 86
Hallgrímur Júlíusson 79
Páll Theódórsson 76
Guðmundur Ágúst Kristjánsson 77
Guðni Fannar Carrico 81

Íslensku strákarnir flottir með fánann við setningu mótsins, fremstur er Magnús Björn því næst Guðmundur Ágúst, Rúnar, Guðni Fannar, Hallgrímur, Páll og fyrir aftan hann er Ragnar Ólafsson, falinn á bak við.

--
