Fréttir | föstudagur 30. júlí 2010 | 11:50
Compton og Every efstir á Greenbrier Classic
Bandaríkjamennirnir Eric Compton og Matt Every eru jafnir í efsta sætinu eftir fyrsta hring á Greenbrier Classic á PGA mótaröðinni.
Þeir léku á 63 höggum, eða sjö undir pari og eru með eins höggs forskot á næstu menn, þá George McNeill, Pat Perez og Jeff Overton.
Ekki eru margir kylfingar úr fremstu röð á þessu móti, en sá hæst skrifaði er Jim Furyk sem fór fyrsta hringinn á tveimur undir pari.
Staðan á mótinu
Mynd úr safni Golfsupport.nl - Matt Every