Fréttir | föstudagur 30. júlí 2010 | 10:12

Rock lék á 65 en skrifaði undir rangt skorkort


Englendingurinn Robert Rock var í góðum málum eftir fyrsta hringinn á Opna írska mótinu. Hann lék á 65 höggum eða sex höggum undir pari og hefði verið einu höggi á eftir efsta manni. Það gerist hins vegar ekki bara á Íslandi að kylfingar athuga skorkortið sitt ekki nógu vel því Rock skrifaði undir skorkortið án þess að fara yfir holurnar og fékk frávísun úr mótinu.

Hann tók ekki eftir því að skor á tveimur holum hafði verið skrifað rangt niður þó höggfjöldinn hafði haldist sá sami. Fljótfærnismistök hjá Rock sem sem kosta hann mikið.

Ég held að ég hafi aldrei fengið frávísun áður. Ég hefði frekar kosið að frávísun hefði komið þegar ég var búinn að leika á 80 höggum,“ sagði Rock súr í bragði. Eftir fyrsta hring er David Howell efstur í mótinu en hann lék á 64 höggum.

Hér má sjá stöðuna í mótinu

Mynd/golfsupport.nl