Fréttir | fimmtudagur 29. júlí 2010 | 10:51

18 ára piltur lék á 57 höggum í meistaramóti!


Bandaríski kylfingurinn Bobby Wyatt, sem verður 18 ára núna um helgina, lék hreint út sagt stórkostlegt golf þegar hann var við keppni í Meistaramóti pilta í Alabama. Hann lék samtals á 14 höggum undir pari, fékk tólf fugla, einn örn og fimm pör á hringnum og setti í kjölfarið met með frammistöðu sinni.

Þetta er lægsta skor sem vitað er um á unglingamótaröð í heimi en fyrra metið var 61 högg þegar Glenn Northcutt lék á 61 höggi á par-70 velli árið 2004. Á stóru mótaröðunum á Roy Ishikawa metið þegar hann lék á 58 höggum núna í vor á japönsku mótaröðinni.