Fréttir | fimmtudagur 29. júlí 2010 | 10:40
Reynir fór holu í höggi á Hlíðarendavelli
Kylfingurinn Reynir Barðdal fór í holu í höggi á 6. braut Hlíðarendavallar á Sauðárkróki í gærkvöldi. 6. brautin á vellinum er 137 metra löng og er þetta í fyrsta sinn sem Reynir fer holu í höggi á golfferlinum. Við óskum Reyni til hamingju með afrekið.
Kylfingur.is vill minna alla kylfinga á að fylgja þeim leiðbeiningum um hvað skal gera þegar farið er holu í höggi og hvernig skal ganga í Einherjaklúbbinn. Hér má finna eyðublað sem skila þarf inn ásamt fleiri upplýsingum þegar farið er holu í höggi.
Mynd: Reynir með golfboltann eftir draumahöggið.