Fréttir | miðvikudagur 28. júlí 2010 | 14:47
Góður undirbúningur hjá GV fyrir Þjóðhátíð

Það er mikill mannfjöldi sem er á leiðinni á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um helgina og búa Eyjamenn sig nú undir það. Sjötta brautin á Vestmannaeyjavelli er árlega notuð sem tjaldstæði og því eru aðeins seinni níu holurnar á vellinum opnar um helgina.
Haraldur Óskarsson, varaformaður Golfklúbbs Vestmannaeyja, viðurkennir að það séu alltaf áhyggjur þó að undirbúningur fyrir Þjóðhátíð hafi verið mikill. „Völlurinn verður girtur af en vissulega höfum við alltaf áhyggjur að eitthvað fari út af sporinu. Við erum hins vegar vel undirbúnir, gæslan er mikil og erum því bjartsýnir. Það sem við ætlum að reyna að taka á eru þessir brunablettir sem verða í kjölfar notkunar á einnota grillum og þegar kveikt er í tjöldum,“ segir Haraldur en verður völlurinn opinn um helgina?
„Seinni níu holurnar verða opna alla helgina en vellinum er svo lokað kl. 17 og þá eru flöggin tekin niður. Við hvetjum alla kylfinga sem eiga leið um Vestmannaeyjar um helgina að kíkja og taka nokkrar holur,“ segir Haraldur en golfskálinn verður einnig opinn um helgina.
Myndir/Kylfingur.is