Fréttir | miðvikudagur 28. júlí 2010 | 14:16

Björgvin getur jafnað Magnús með sigri í Einvíginu á Nesinu


Einvígið á Nesinu hefur verið leikið árlega frá árinu 1997 og dregur jafnan að sér fjölda áhorfenda. Björgvin Sigurbergsson úr Keili sigraði í mótinu á síðasta ári þegar hann hafði betur gegn Ólafi Birni Loftssyni úr NK á lokaholunni og vann þar með mótið öðru sinni.

Magnús Lárusson úr GKj hefur oftast farið með sigur af hólmi en hann vann mótið þrisvar í röð frá 2004 til 2006. Með sigri í ár getur Björgvin því jafnað árangur Magnúsar yfir flesta sigra. Hér að neðan má sjá alla sigurvegara frá upphafi.

1997 Björgvin Þorsteinsson
1998 Ólöf María Jónsdóttir
1999 Vilhjálmur Ingibergsson
2000 Kristinn Árnason
2001 Björgvin Sigurbergsson
2002 Ólafur Már Sigurðsson
2003 Ragnhildur Sigurðardóttir
2004 Magnús Lárusson
2005 Magnús Lárusson
2006 Magnús Lárusson
2007 Sigurpáll Geir Sveinsson
2008 Heiðar Davíð Bragason
2009 Björgvin Sigurbergsson

Myndir/Kylfingur.is