Bookmark and Share

Fréttir | miðvikudagur 28. júlí 2010 | 14:02

Aðeins ein hola með meðalskor undir pari á Kiðjabergsvelli


Það er jafnan gaman að rýna í tölfræði eftir Íslandsmótið í höggleik og var Kiðjabergsvöllur nokkuð erfiður fyrir kylfinga. Þegar meðalskor á holum í mótinu kemur í ljós að aðeins ein hola var með meðalskor undir pari. Það er 6. holan sem er stutt par-4 hola en meðalskor á holunni í mótinu var 3,82 högg af hvítum teigum. Þetta kemur fram í tölfræði frá Golfheimar.is.

Erfiðasta holan í mótinu af hvítum var önnur holan en meðalskor á þessa erfiðu par-4 holu voru 5 högg. Erfiðasta holan hjá konunum var 15. holan en hún var leikin 1,12 höggi yfir pari af bláum teigum. Hér að neðan má sjá hvernig holurnar á Kiðjabergsvelli voru skoraðar í Íslandsmótinu.



Mynd/Kylfingur.is