Bookmark and Share

Fréttir | miðvikudagur 28. júlí 2010 | 12:06

Harrington gæti þurft að treysta á Monty


Írinn Padraig Harrington viðurkennir að hann þurfi að berjast fyrir sæti sínu í Ryder-liði Evrópu. Hann er í 17. sæti Ryder-listans hjá Evrópu en telur sig þó nógu góðan til að spila sig inn í liðið. Átta efstu kylfingarnir fá sjálfkrafa sæti og takist Harrington ekki að tryggja sér sjálfkrafa sæti, þá stefnir í baráttu hans við kylfinga líkt og Paul Casey, Edoardo Molinari, Justin Rose og Henrik Stenson um valsæti í liðinu.

Ég hef verið oftar í topp-10 á undanförnu ári en nokkru sinni áður á ferlinum sem þýðir að ég er að leika vel. Ég hef ekki unnið mót sem er undir væntingum en ég hef verið í fínu formi. Ég verð að bíða og sjá hvað gerist,“ segir Harrington sem hefur ekki unnið mót síðan hann stóð uppi sem sigurvegari á PGA-Meistaramótinu fyrir tveimur árum.

Hann mun leika á heimavelli um helgina á Evrópumótaröðinni þegar Opna írska mótið fer fram. Hann gæti náð að spila sig inn í liðið með góðri frammistöðu á næstu vikum því stór mót eins og WGC-Brigdestone Invitational og PGA-Meistaramótið eru handan við hornið.

Harrington fær einnig stuðning frá vara-fyrirliðanum Darren Clarke sem getur ekki hugsað sér liðið án hans. „Ég get ekki séð það fyrir mér að hann verði ekki í liðinu, en ég er ekki fyrirliði,“ sagði Clarke. „Það er óskandi að hann leiki vel á næstu vikum og spili sig inn í liðið sem gæfi Monty annan möguleika í valið.“

Myndir/golfsupport.nl