Fréttir | þriðjudagur 8. júní 2010 | 15:02

US Kids golf mótaröðin fer af stað 22. júní


US Kids golf og Golfsambandi Íslands 2010 efna til mótaraðar fyrir kylfinga 12 ára og yngri, mótið er fyrir alla krakka 12 ára og yngri (fædd 1998 og yngri) sem eru að leika og æfa golf hjá viðurkenndum golfklúbbi og eru komin með forgjöf. Af óviðráðanlegum ástæðum fellur fyrsta mótið niður en það átti að fara fram hjá Golfklúbbi Sauðarkróks 11. júní, fyrsta mótið fer því fram 22. júní.

Markmið með mótaröðinni er:
-Að hafa gaman af golfi og keppa við sjálfan sig og aðra í skemmtilegum leik og þrautum.
-Meiri fjölbreytni í æfingar og þjálfun.
-Fá meiri kraft í breiddina hjá golfklúbbum um land allt.
-Þjálfarar hjá GSÍ fylgjast betur með ungum og efnilegum kylfingum.

Keppnisfyrirkomulag:
Keppt er á grænum teigum (gull teigar í Mosó) 9-18 holur. Það eru teigar sem eru styttri en rauðir teigar. Leikin er punktakeppni

Keppnisdagar í sumar:
Þriðjudagur 22. júní Golfklúbburinn Keilir (GK)
Föstudagur 25. júní Golfklúbbur Ísafjarðar (GÍ)
Föstudagur 2. júlí Golfklúbbur á Fljótdalshéraði (GFH)
Þriðjudagur 20. júlí Golfklúbburinn Leynir á Akranesi (GL)
Þriðjudagur 10. ágúst Golfklúbburinn Kjölur í Mosfellsbæ (GKJ)

Keppnisgjald er 1000 kr.-
Skráning er á golf.is. Skráningu lýkur á sunnudeginum fyrir mót. Umsjónarmaður mótanna er Karl Ómar Karlsson, verkefnisstjóri barna- og unglingagolfs hjá GSÍ.

karl.omar.karlsson@akranes.is / 863-1008