Fréttir | sunnudagur 14. mars 2010 | 22:49

Metin féllu á Öldungamótaröðinni


Boonchu Ruangkit skráði sig í sögubækur Öldungamótaraðar Evrópu þegar hann sigraði með ótrúlegum yfirburðum á Thailand Senior Masters í heimalandi sínu í dag. Ruangkit lék hringina þrjá á 195 höggum, eða 21 undir pari, og var heilum ellefu höggum á undan næsta manni.

Hvort tveggja er met á mótaröðinni, en fyrri met áttu David Good (2003) og Tom Lendzion (2005) sem báðir unnu sigra á 18 höggum undir pari og Timmy Horton sem sigraði með níu högga mun á El Bosque Open árið 1998.

Ruangkit er aldeilis sjóðheitur þessa dagana því að hann vann einmitt líka síðasta mót, Brunei Senior Masters, og er að sjálfsögðu efstur í tekjulista mótaraðarinnar.

Ríkjandi Order of Merit titilhafi, Skotinn Sam Torrance, varð í 24.sæti á mótinu og var nokkuð sáttur við sinn hlut í steikjandi hitanum. Honum fannst mikið til spilamennskunnar hjá Puangkit koma.

„Boonchu er ótrúlegur. Ég þekki hann afar vel og veit að hann hefur verið framúrskarandi kylfingur í langan tíma og hann sýndi einmitt það í þessari viku.“

Lokastaðan

Mynd/Asiantour.com