Forsíða | föstudagur 12. febrúar 2010 | 10:18

Íslenski golfkennarinn með taglið kominn á fimm stjörnu golfsvæði á Spáni


„Það er ekki leiðinlegt að vera hérna úti í blíðunni að kenna og spila golf. Nú bíður mín nýtt verkefni og byrjunin á því lofar góðu. Þetta er frábær staður sem ég er kominn á,“ segir Ívar Hauksson, PGA golfkennari, en hann hefur verið ráðinn yfirgolfkennari hjá fimm stjörnu svæðinu „Fairplay Golf & Spa Resort“ á suður-Spáni. 


„Ég er búinn að vera sem golfkennari á Campoamor golfvellinum í tólf ár og það hefur verið skemmtilegt og gengið mjög vel. Ég hef haft marga viðskiptavini, bæði Íslendinga og aðra og meðal annars landsliðsmenn frá Evrópu og atvinnumenn frá skandinavíu“ sagði Ívar í spjalli við kylfing.is.

Ívar segir að maður að nafni Bernard sem sé eigandi að þessu fimm stjörnu golf resorti og hóteli í Andalúsíu hafi komið að máli við sig og boðið honum að gerast yfirþjálfari og sjá um golfakademíu svæðisins. „Ég veit ekki hvernig hann frétti af mér en grunar þó að hann hafi séð mig í spænska sjónvarpinu. Til að gera langa sögu stutta, ég sagði við hann svona í léttum tóni meira þegar hann gerði mér þetta tilboð að ég væri tilbúinn að koma ef hann myndi bjóða mér eitthvað sem ég gæti ekki hafnað og sagðist hann ætla að vera í sambandi síðar.

Hann síðan hringdi síðan í mig og bauð mér að koma og skoða svæðið sem mér leist mjög vel á og sagðist hann síðan vilja fund með mér áður en ég færi og á þeim fundi bauð hann mér hluti sem ég gat ekki hafnað sagði Ívar sem pakkaði saman dótinu sínu og hélt með fjöldskyldu sína á vit nýrra ævintýrra í ársbyrjun 2010, alveg óvænt.

Á svæðinu er m.a. 18 holu golfvöllur og annar í byggingu og stórt og gott æfingasvæði. Hótelið var m.a. valið „World Leading Golf Resort 2009“ en þar að auki hefur það fengið fjölda annarra viðurkenninga eins og t.d. Europes Leading Golf Resort 2007 og Spains Leading Spa Resort 2008. Ívar sagði mikinn klassa yfir öllu á svæðinu og hótelið væri tilnefnt til sömu verðlauna á árinu 2010. Það er staðsett um 50-60 mín. frá Marbella í suður og er stutt í flugvelli eins og í Cadiz, Jerez og Malaga er í um 90 mín. aksturfjarlægð frá svæðinu.
Á hótelinu eru m.a. 5 veitingastaðir, billiardsalur, flottur æfingasalur, veiðivötn eru við hótelið, hestaskóli, risastór spa veröld og margt fleira. Þá eru hótelherbergin mjög vel búin allt að 200 m2. Þetta golf resort er með svokallað „All included“ verð og verður enginn svikinn veru sinni þar að sögn Ívars.

Ívar sagði að æfingasvæðið væri mjög gott, yfirbyggt og völlurinn væri flottur og er hann staðsettur fyrir framan verndaðan náttúrugarð.

Ívar hefur verið í samstarfi við Costablanca.is með golfferðir á svæðið og hefur einnig verið í góðu sambandi við fjölda Íslendinga sem eiga húsnæði á Spáni og hefur hann gert séstakan pakka fyrir íslendinga á Costablanca svæðinu og hægt er að sjá það á Costablanca.is.

Þess má geta að íslenski golf-víkingurinn vakti athygli spænskra sjónvarpsmanna og var sýnt viðtal við íslenska golfkennarann með taglið í spænska sjónvarpinu.

Fljótlega verður aftur viðtal við hann í spænskri golf sjónvarpsrás Golf + á þessum nýja velli sem hann starfar á núna og mun hann spila völlinn og lýsa honum um leið og hann spilar.

Ívar hvetur alla fyrri nemendur og golfhópa sem hafa komið til hans undanfarin ár til að hafa samband við sig þar sem hann verður með golfferðir þangað niðureftir.

Ívar verður með sama símann og áður +34 606743181 og sama tölvupóst ivar.pga.pro@gmail.com.

www.fairplaygolfhotel.com.