Forsíða | mánudagur 8. febrúar 2010 | 22:14

Byrjar Woods á Tavistock?


Enn er velt vöngum yfir því hvenær Tiger Woods hyggist snúa aftur til keppni og nú hefur slúðurfréttasíðan TMZ.com (sem var í fararbroddi með fréttir af Tiger og afrekum hans í kjölfar umferðaróhappsins eftirminnilega) slegið því fram að kappinn muni keppa á Tavistock Cup í Flórída helgina 22.-23. mars.

Samkvæmt þessum fréttum, sem vandaðir íþróttamiðlar líkt og Sporting News hafa gripið á lofti, ætlar Tiger að láta þetta mót duga áður en hann mætir til leiks á Masters á Augusta í byrjun apríl.

Tavistock Cup er liðakeppni milli tveggja klúbba í Flórída sem er samþykkt af PGA og býður upp á ansi ríflegt verðlaunafé auk þess sem mótið fer fram skammt frá heimili Tigers, sem var útskrifaður af meðferðarstofnun fyrir helgi.

TMZ segist hafa áreiðanlegar heimildir frá „starfsmanni Woods-fjölskyldunnar“, en Steve Williams, kylfusveinn Tigers, hefur vísað þessum fregnum á bug.

H: Sporting News og TMZ.com

Mynd/Golfsupport.nl