Fréttir | sunnudagur 7. febrúar 2010 | 23:10
Stricker sjóðheitur - Sigraði á Riviera
Steve Stricker fagnaði sigri á Nortern Trust Open á Riviera rétt í þessu þar sem hann lauk mótinu á 16 höggum undir pari. Luke Donald varð í öðru sæti á 14 höggum undir pari og hleypti virkilega spennu í mótið með fantaspilamennsku á lokahringnum Þar sem hann lék á fimm undir.
Stricker heldur væntanlega þriðja sætinu á heismlistanum með þessum árangri, en hann hefur komið afar sterkur inn í upphafi árs og er með forystu á FedEx-stigalistanum.
Jafnir í fjórða til fimmta sæti, á 13 undir pari, voru JB Holmes og Dustin Johnson sem átti góðan dag í dag og hefði átt góða möguleika á sigri ef hann hefði ekki leikið herfilega á þriðja hring í gær.
Neðar í töflunni voru t.d. Ernie Els sem var í 10.-14.sæti á átta höggum undir pari. Jim Furyk var á sex höggum undir og Phil Mickelson, sem vann þetta mót síðustu tvö árin, lauk leik á tveimur höggum undir pari eftir að hafa leikið á tveimur höggum yfir pari í dag.
Lokastaðan
Mynd/Golfsupport.nl