Fréttir | sunnudagur 7. febrúar 2010 | 22:42

Góð þátttaka í mótum GKJ um helgina


Nítjánda vetrarmót GKJ fór fram í gær við nokkuð erfiðar aðstæður,  bæði var nokkur vindur að Norð-austan og færið í harðari lagi. Enda var skorið í hærri kantinum. Það voru þó 49 þátttakendur sem mættu og skemmtu sér í góðum félagsskap. Helstu úrslit urðu þessi:

Höggleikur:

1. Þórhallur Kristvinsson, 41 högg
2. Jón Hilmar Kristjánsson, 43 högg
3. Skúli Skúlason, 44 högg

Punktakeppni m/forgjöf:
1. Birgir Sigurjónsson, 16 punkta
2. Guðlaugur Karlsson, 15 punkta*
3. Jóhann EW Stefánsson, 15 punkta*
4. Bjarnþór Erlendsson, 15 punkta*
*eftir skrifstofubráðabana

Í dag fór svo fram fimmta mótið á Púttmótaröð þeirra GKJ-manna og urðu úrslit eftirfarandi:
1. sæti - Davíð Gunnlaugsson 28 pútt

2. sæti - Haukur Hafsteinsson 29 pútt

3. sæti - Kristján Þór Einarsson 30 pútt

Það var aðeins Haukur sem bættist við í Lokamótið þar sem þeir félagar Davíð og Kristján Þór höfðu áður tryggt sig inn. Eftirtaldir aðilar hafa þá tryggt sig inn á lokamótið sem fram fer sunnudaginn 20. febrúar:

 
Aron Skúli Ingason
Davíð Gunnlaugsson
Heiða Guðnadóttir
Skúli Skúlason
Tómas Salmon
Karl Loftsson
Hilmar Harðarson
Kristján Þór Einarsson
Jón Hilmar Kristjánsson
Gunnar Árnason
Haukur Hafsteinsson

Næsta laugardag verður Þorramótið  og eru menn beðnir um að skrá í síðasta lagi á fimmtudaginn  á gkj@gkj.is þ.e. þeir sem ætla að taka þátt í mótinu og borða þorramat á eftir.  Mótsgjald er stillt í hóf og kosta kr. 1500 fyrir félaga og 2500 fyrir gesti.